Lög um landslén til að vernda ímynd Íslands 5. nóvember 2010 14:09 Frumvarpsdrögin leggja til að íslenska ríkið hafi ákvörðunarrétt yfir landsléninu .is
Drög að frumvarpi til laga um landslénið .is og önnur höfuðlén sem sérstaka skírskotun hafa til Íslands er nú til umsagnar hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Meginmarkmiðið með frumvarpsdrögunum er að stuðla að gæðum, hagkvæmni og framþróun á sviði lénaumsýslu með því að setja lagaramma um lénaskráningar á Íslandi sem tryggir öryggi, skilvirkni og gagnsæi varðandi umsýslu með lén sem tilheyra landsléninu .is. Markmið þess eru aukinheldur að tryggja að um skráningu léna gildi skýrar reglur þar sem gætt er að hagsmunum almennings og að jafnræði aðila um aðgang sé tryggt. Auk þess má segja að tilgangur laga um landslénið .is sé að vernda ímynd Íslands, það er að tryggja að .is sé gæðamerki. Þetta kemur fram á vef samgönguráðuneytisins. Í frumvarpsdrögunum er lagt til að lénaumsýslu á Íslandi verði settur lagarammi í fyrsta sinn. Nefnd um framtíðarskipan lénamála hefur starfað með hléum frá árinu 2007 á vegum samgönguráðuneytisins. Í henni áttu sæti fulltrúar internetþjónustuveitenda, samtaka atvinnulífsins, Neytendasamtakanna, fjármálaráðuneytis, forsætisráðuneytis og Isnic, sem sinnir skráningum á .is lénum. Á síðasta fundi nefndarinnar var ákveðið að óska eftir athugasemdum við meðfylgjandi drög að frumvarpi í opnu samráði eins og hér er gert. Frumvarpsdrögin leggja til að íslenska ríkið hafi ákvörðunarrétt yfir landsléninu .is og öðrum höfuðlénum sem sérstaka skírskotun hafa til Íslands. Jafnframt er kveðið á um að stjórnvöld fari með yfirstjórn höfuðléna með sérstaka skírskotun til Íslands og að starfsemi skráningarstofu, sem annast muni skráningar léna undir .is verði háð starfsleyfi og eftirliti Póst- og fjarskiptastofnunar. Frumvarpsdrögin styðjast við fjarskiptaregluverkið og með þeim er umsýsla með íslensk höfuðlén felld undir sambærilegt regluverk og aðilar á fjarskiptamarkaði starfa undir. Hingað til hafa engin sérlög gilt á þessu sviði hér á landi og af íslenskri löggjöf verður ekki ráðið að umsjón með landsléninu .is lúti öðrum reglum eða eftirliti en almennur atvinnurekstur. Með hliðsjón af mikilvægi starfseminnar í þjóðfélagslegu tilliti er litið svo á að starfsemi á borð við þessa skuli lúta eftirliti opinberra aðila. Auðveldur og hagkvæmur aðgangur á lénum ætti jafnframt að auka fjölda skráninga og stuðla að framþróun internetsins. Þeir sem óska geta sent umsagnir sínar umdrögin á netfangið postur@sam.stjr.is til og með 12. nóvember næstkomandi. Smellið hér til að lesa drögin að frumvarpinu á vef samgönguráðuneytisins.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira