Mílu gert að veita Vodafone aðgang 5. nóvember 2010 06:00 Með aflagningu Varnarmálastofnunar færast verkefni hennar til í stjórnkerfinu. Stofnunin samdi í byrjun þessa árs um að veita Vodafone aðgang að ljósleiðurum í ljósleiðarakapli NATO sem hringtengir landið. Fréttablaðið/Stefán
Upplýsingatækni Vodafone fær aðgang að ljósleiðara NATO sem er í umsjá og að hluta í eigu Mílu, samkvæmt nýrri ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunarinnar (PFS). Tengingu á helstu staði á að vera lokið fyrir 15. desember, að því er fram kemur í ákvörðuninni. Eftir útboð samdi Vodafone í byrjun þessa árs við Varnarmálastofnun um leigu á ljósleiðara í kapli NATO. Míla á fimm ljósleiðarastrengi í kaplinum, en þrír eru á forræði utanríkisráðuneytisins. Í ákvörðuninni er hafnað rökum Mílu (sem á og rekur fjarskiptanet Símans) um að kröfugerð Vodafone um aðgang hefði átt að beina til utanríkisráðuneytisins og um að Varnarmálastofnun, sem leigði Vodafone einn ljósleiðara í kapli NATO, hefði ekki heimild til fjarskiptastarfsemi. PFS vísar til þess að samkvæmt ákvörðun stofnunarinnar frá árinu 2007 og með vísan til fjarskiptalaga hvíli sú kvöð á Mílu að veita aðgang að kaplinum. „Míla ehf. skal hafa forræði á því hvernig uppsetningu verður háttað og leggja til nauðsynlegar teikningar ef þurfa þykir. Fyrirtækið skal hafa hliðsjón af þeirri lýsingu sem fram kemur í erindi Og fjarskipta,“ segir jafnframt í ákvörðuninni. Um leið er áréttað að Míla megi rukka Vodafone um kostnað vegna breytinga sem ráðist verði í til að veita aðganginn. „Við fögnum að sjálfsögðu niðurstöðunni, enda er óheftur aðgangur að ljósleiðaranum, sem við greiðum fyrir samkvæmt samningi við hið opinbera, forsenda þess að samkeppni skapist í gagnaflutningum um landið,“ segir Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone. „Fyrirtæki hafa þurft að kaupa gagnasambönd Mílu, sem hefur verðlagt þjónustuna í samræmi við stöðu sína á markaðnum,“ segir hann og boðar aukna þjónustu þar sem samkeppni hafi verið takmörkuð þar til nú. PFS hafnaði kröfu um að Míla yrði beitt dagsektum vegna dráttar tengingar Vodafone við kapalinn. „Eins og málavöxtum er háttað verður að telja að sá dráttur sem orðið hefur á málinu sé ekki eingöngu af völdum Mílu, heldur sé hann að hluta til á ábyrgð Varnarmálastofnunar sem gagnaðila fyrirtækisins, meðal annars með því að draga að tilkynna um fjarskiptastarfsemi sína og ganga frá óleystum atriðum varðandi eignarhaldið á strengnum,“ segir í ákvörðuninni. Ekki náðist í Evu Magnúsdóttur, forstöðumann sölu hjá Mílu. Fyrirtækið getur innan fjögurra vikna skotið ákvörðun PFS til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira