Innbrotaalda á Suðurnesjum 5. nóvember 2010 14:14
Lögreglunni á Suðurnesjum hefur að undanförnu borist nokkur fjöldi tilkynninga um innbrot og tilraunir til innbrots. Að sögn lögreglu hafa innbrotin átt sér stað bæði að nóttu og degi og hafa heimili, bifreiðar og fyrirtæki orðið fyrir barðinu á innbrotsþjófum. Meðal annars var farið inn í ólæstan bíl fyrir utan leikskóla og veski stolið, en ökumaðurinn hafði skroppið inn með barnið sitt í skólann. Innbrot í heimahús hafa yfirleitt átt sér stað um miðjan dag, þegar fólk er ekki heima. Í flestum tilfellum hafa hálfopnir gluggar verið spenntir upp og þannig farið inn í húsin. Lögregla vill kom því á framfæri við fólk að gæta að húsum sínum og öðrum eigum og tryggja það að óviðkomandi hafi ekki greiðan aðgang að eigum þess. Mikilvægt er að loka gluggum og læsa tryggilega. „Lögreglan hvetur fólk til að láta vita um grunsamlegar mannaferðir, ekki síst í íbúðahverfum, en upplýsingar frá nágrönnum geta skipt miklu máli," segir ennfremur. „Það sem fólki kann að þykja lítilfjörlegt getur orðið til þess að upplýsa mál. Hér er m.a. átt við lýsingu á mönnum, bifreiðum eða bílnúmerum, en slíkar upplýsingar geta oft komið lögreglu á sporið. Rétt er að geta þess að innbrotsþjófar fylgjast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða." Hægt er að koma ábendingum/upplýsingum á framfæri við lögreglu í síma 420-1800 eða netfang lögreglunnar á Suðurnesjum, logreglan@dc.is
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira