Nýi vegurinn kostaði 2,7 milljarða króna 5. nóvember 2010 13:01 Frá Raufarhöfn. Leiðin milli Húsavíkur og Raufarhafnar styttist um 21 kílómetra.
Þjóðvegurinn milli Húsavíkur og Þórshafnar styttist um 53 kílómetra á morgun, með formlegri opnun Hófaskarðsleiðar þvert yfir Melrakkasléttu. Núverandi vegur milli byggðanna norður um Sléttu er 212 kílómetra langur en með nýja veginum styttist leiðin niður í 159 kílómetra. Þá leysir vegurinn af Öxarfjarðarheiði, sem hefur aðeins verið fær á sumrin. Það verður klukkan ellefu í fyrramálið sem samgönguráðherra ásamt vegamálastjóra klippir á borðann á Hófaskarði og ætla íbúar á norðausturhorni landsins að fagna tímamótunum með héraðshátíð um helgina, "Núna fer ég norður". Leiðin milli Húsavíkur og Raufarhafnar styttist um 21 kílómetra, leiðin milli Kópaskers og Þórshafnar styttist um 46 kílómetra og leiðin milli Kópaskers og Raufarhafnar styttist um 13 kílómetra. Þetta eru í raun tveir vegir sem verið er að fagna; 39 kílómetra löng Hófaskarðsleið og nýr 14 kílómetra Raufarhafnarvegur, sem er afleggjari af Hófaskarðsleið. Heildarkostnaður, samkvæmt yfirliti Vegagerðarinnar, nam 2.680 milljónum króna, þar af kostaði Raufarhafnarvegur 460 milljónir króna. Verktaki á Hófaskarðsleið var Héraðsverk ehf, Egilsstöðum og á Raufarhafnarleið KNH ehf, Ísafirði. Upphaflega stóð til að opna veginn á síðasta ári en vegna deilna við landeigendur tafðist verkið. Raunar lenti Vegagerðin í miklum ógöngum með ærnum aukakostnaði við að ljúka síðasta kaflanum næst Kópaskeri eftir að hún tapaði málaferlum fyrir Hæstarétti gegn bónda einum. Neyddist Vegagerðin á endanum til að láta sprengja veginn í gegnum mikinn klettaás, og hafa gárungar þegar nefnt vegstæðið þar Aulaskarð.
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira