Íslenski fjárhundurinn á risasýningu í Bandaríkjunum 5. nóvember 2010 13:00 Guðni Ágústsson, formaður deildar íslenska fjárhundsins, ásamt tíkunum Ylfu og Sunnu. Sérstök ættarnöfn þeirra eru Íseyjar-Ylfa og Keilis-Sunna. Guðni fagnar fréttunum af landvinningum íslenska fjárhundsins í Bandaríkjunum. fréttablaðið/anton „
Þetta er mjög mikilvæg sýning fyrir framtíðarvinsældir íslenska fjárhundsins í Bandaríkjunum,“ segir Kristina Moore, fjölmiðlafulltrúi hundasýningar Kennel-klúbbsins. Íslenski fjárhundurinn verður frumsýndur á hundsýningu Kennel-klúbbsins sem hefst í Philadelphiu í Bandaríkjunum í næstu viku. Sýningin er ein sú stærsta í heimi og er sýnd árlega á NBC-sjónvarpsstöðinni á þakkargjörðardaginn, sem nú ber upp á 20. nóvember. Búist er við að yfir 20 milljónir manna fylgist með útsendingunni. „Þetta er ein virtasta hundasýning Bandaríkjanna,“ segir Moore. „Keppnin er föst hefð í lífi fjölmargra Bandaríkjamanna á þakkargjörðardaginn. Þeir horfa á Macy‘s-skrúðgönguna og hundasýninguna eftir á.“ Um 4.000 hundar verða til sýnis á sýningunni, en ásamt íslenska fjárhundinum verða fimm ný kyn frumsýnd. Guðni Ágústsson, formaður deildar íslenska fjárhundsins, segir að þetta séu toppfréttir fyrir kynið. „American Kennel Club er stærsti klúbburinn, þó að þeir séu fleiri stórir í Bandaríkjunum,“ segir hann. „Forsagan er sú að það er búið að taka langan tíma að fá hundinn viðurkenndan þarna úti. Það hafa verið svona tveir til þrír stofnar að rífast, en þeir sem eru að standa í þessu núna höfðu samband við okkur og óskuðu eftir leiðbeiningum – að við segðum hvernig heimalandið vildi að hundurinn liti út.“ Kynið var viðurkennt 1. júlí síðastliðinn. Guðni segir að þar hafi stórt skref verið stigið og bætir við að þau í deild íslenska fjárhundsins hafi verið afar ósátt við hvernig málum var háttað áður en ný stjórn tók við í ISAA, Icelandic Sheepdog Association of America. „Öll hundakyn í heiminum hafa ákveðin ræktunarmarkmið sem segja til um hvernig hundurinn eigi helst að líta út,“ segir Guðni. „Við viljum að hundurinn sé viðurkenndur um allan heim, en við viljum að hann sé viðurkenndur eins og við segjum að hann eigi að vera.“ atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira