Innlent

Tæplega 30 milljónum safnað í maraþoni

Tæplega 30 milljónir hafa safnast í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbankans samkvæmt upplýsingum á heimasíðunni hlaupastyrkur.is.

Björn Margeirsson sigraði í maraþoni en hann er fyrstur Íslendinga til þess að sigra í heilmaraþoni síðan 1984

Þúsundir Íslendinga hafa hlaupið um götur borgarinnar og eru enn að. Aðstæður á hlaupabrautinni hafa verið góðar, sól og smá vindur. Búið er að veita verðlaun til sigurvegara í keppnisvegalengdum.

Í maraþoni karla kom Björn Margeirsson fyrstur í mark á tímanum 2:33:57. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1984 sem íslenskur karl kemur fyrstur í mark í maraþoni.

Árið 1984, í fyrsta Reykjavíkurmaraþoninu, sigraði Sigurður Pétur Sigmundsson en síðan þá og þar til í dag hafa sigurvegararnir verið erlendir.

Í maraþoni kvenna kom Rannveig Oddsdóttir fyrst í mark á tímanum 2:57:33 en það er 12 besti tími kvenna í Reykjavíkurmaraþoni frá upphafi og besti tími síðustu fimm hlaupa.

Þau Björn og Rannveig eru ásamt því að vera sigurvegarar í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010, Íslandsmeistarar í maraþoni 2010.

Þjóðverjinn Oliver Steininger sigraði í hálfmaraþoni karla og Íris Anna Skúladóttir í hálfmaraþoni kvenna. Steininger var á tímanum 1:16:11 og Íris Anna á 1:26:55. Í 10 km hlaupinu sigruðu þau Jósep Magnússon á tímanum 34:50 og Arndís Ýr Hafþórsdóttir á tímanum 39:01.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×