Innlent

Sæbjúgnaflotinn stækkar

Grundarfjörður. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.
Grundarfjörður. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.

Bátum sem veiða sæbjúgu hér við land fer nú ört fjölgandi. Lengi vel stundaði aðeins einn bátur þessar veiðar, Hannes Andrésson SH, en nú eru bátarnir orðnir sex talsins.

Hannes Andrésson er gerður út frá Grundarfirði, en þar hefur fyrirtækið Reykofninn verið að þróa vinnslu á sæbjúgum undanfarin sex ár. Sæbjúgu eru skrápdýr, skild krossfiskum og ígulkerjum, og þykja hollustufæði hjá Kínverjum, sem kalla sæbjúgu Ginseng hafsins.

Í fyrrasumar bættust tveir aðrir bátir í sæbjúgnaflotann, Hrafnreyður KÓ og Hans Jakob GK, og þeim hefur enn fjölgað í ár. Á vefsíðunni Aflafréttir má sjá að sex bátar eru nú komnir á sæbjúgnaveiðarnar.

Hannes Andrésson er þeirra aflahæstur, með 486 tonn í 53 róðrum frá áramótum. Sæfari ÁR, sem landað hefur á Eskifirði og í Neskaupstað, er kominn með 357 tonn, og Drífa SH, sem landar í Sandgerði, er komin með 301 tonn. Hans Jakob, sem einnig landar í Sandgerði, er kominn með 132 tonn. Sandvíkingur ÁR, sem rær frá Stöðvarfirði, er nýbyrjaður og kominn með 20 tonn eftir fjóra róðra.

Vefurinn Aflafréttir segir að margsinnis hafi verið minnst á makrílæðið en sæbjúgnaveiðarnar séu kannski hitt litla æðið. Enginn kvóti er á sæbjúgum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×