Innlent

Rugluðust á milljarði og milljón

Icelandair Group birti í gærkvöldi leiðréttingu á ensku útgáfu uppgjöri annars ársfjórðungs en félagið birti uppgjörið á föstudaginn síðastliðinn. Á heimasíðunni í gær var sagt frá því að tap félagsins eftir skatta hafi numið 161 milljónum króna en ekki 161 milljarði eins og var sagt á föstudaginn.

Hagnaður samstæðunnar á fyrri hluta þessa árs var 2,3 milljarðar króna fyrir skatta og fjármagnsliði, samanborið við tæpan 1,5 milljarð króna á sama tíma í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×