Tæpir þrír sólarhringar liðnir - morðinginn enn ófundinn 17. ágúst 2010 21:06 Morðinginn er enn þá ófundinn.
Enginn hefur verið handtekinn eftir að manni á þrítugsaldri var sleppt úr haldi lögreglunnar í dag vegna rannsóknar á manndrápi í Hafnarfirði síðustu helgi. Samkvæmt Friðriki Smára Björgvinssyni, yfirlögregluþjóni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, vinna fjörtíu lögreglumenn að rannsókn málsins. Fjölmargir hafa verið yfirheyrðir og þeirri vinnu er ekki lokið. Tæknirannsókn á vettvangi er langt komin og önnur gagnaöflun í fullum gangi. Fjöldi ábendinga hafa borist frá almenningi og verið er að vinna úr þeim eftir því sem tilefni er til. Maðurinn sem var handtekinn í dag var æskuvinur unnustu hins myrta. Lögreglan sá hinsvegar ekki ástæðu til þess að fara fram á gæsluvarðhald yfir honum og var honum því sleppt síðdegis. Maðurinn var nafn- og myndbirtur í nokkrum ljósvakamiðlum en lögmaður hans, Guðrún Sesselja Arnardóttir, gagnrýndi þá fjölmiðla harðlega fyrir forkastanleg vinnubrögð. Þá sagði hún í viðtali á Stöð 2 í kvöld að fleiri hefðu verið handteknir vegna málsins og yfirheyrðir. Hannes Þór fannst látinn á heimili sínu á sunnudaginn. Hann hafði verið stunginn margsinnis með hníf fyrr um nóttina. Það var unnusta mannsins sem kom að honum. Lögreglan hefur leitað morðingjans án árangurs í tæpa þrjá sólarhringa.
Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Sjá meira