Mígreni tengt meiri líkum á hjartaáfalli Óli Kristján Ármannsson skrifar 26. ágúst 2010 05:00 Lárus Steinþór Guðmundsson, faraldsfræðingur og doktorsnemi við Háskóla Íslands, og prófessor Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar, leiddu tímamótarannsókn Hjartaverndar sem birt var í gær. Fréttablaðið/Valli
Heilbrigðismál Auknar líkur eru á því að fólk með ákveðna tegund mígrenihöfuðverkja deyi af völdum hjarta- og æðasjúkdóma. Í niðurstöðum íslenskrar rannsóknar sem birt var í gær í vefútgáfu British Medical Journal (BMJ) kemur fram að fólk sem þjáist af mígreni með áru, en þá fylgja höfuðverknum sjón- eða skyntruflanir, sé í þessum áhættuhópi. Fólk með mígreni án áru er ekki í aukinni hættu. Lárus Steinþór Guðmundsson, faraldsfræðingur og doktorsnemi við Háskóla Íslands, sem leiddi rannsóknina, segir að í eldri rannsóknum hafi verið að finna vísbendingar um tengslin, en í þessari hafi í fyrsta sinn verið hægt að greina á milli mígrenis með og án áru. Rannsóknin marki því tímamót. Næsta skref segir Lárus að svara spurningunni um hvað valdi tengingunni. „Við eigum eftir að svara spurningunni um hvort lyfjameðferð sem fækkar köstum mígrenis með áru dragi einnig úr líkum á hjartaáfalli og hjartasjúkdómum.“ Rannsóknin var á vegum Hjartaverndar og unnin í samvinnu við Háskóla Íslands, National Institute of Aging og Uniformed Services University of the Health Sciences í Bandaríkjunum. Í tilkynningu Hjartaverndar kemur fram að þetta sé í fyrsta sinn sem niðurstöður hóprannsóknar með langtíma eftirfylgni sýni fram á þessi tengsl mígrenis með áru við hættuna á því að deyja úr hjarta- og æðasjúkdómum. Lárus segir þó mikilvægt að niðurstöðurnar valdi ekki ótta að óþörfu því áhættan sem sýnt hafi verið fram á sé í raun lítil miðað við hefðbundna áhættuþætti. „Þarna er hins vegar komin enn ein ástæðan fyrir fólk að fylgjast með þessum lífsstílsáhættuþáttum,“ segir hann og vísar meðal annars til reykinga og kólesterólsöfnunar. Forsendu rannsóknarinnar segir Lárus vera hversu vel hafi verið staðið að rannsókn Hjartaverndar, en þar var mígreni með og án áru greint með spurningalista sem þátttakendur svöruðu á árunum 1967 til 1991. Þátttakendur voru 18.725 karlar og konur sem fædd voru á árunum 1907 til 1935. Meðaleftirfylgni var 26 ár, en Lárus segir að í rannsókn sem þessari sé 15 ára eftirfylgni lágmark. Í tilkynningu Hjartaverndar segir að tímalengdin þýði að rannsóknin sé meðal umfangsmestu rannsókna sem gerðar hafi verið. Hún vakti enda strax heimsathygli við birtingu í gær. Um miðjan dag var Lárus þegar búinn að vera í viðtali við CBS News Radio, auk þess sem ýmsir fréttamiðlar á netinu höfðu sett sig í samband við hann.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Innlent Steinþór sýknaður í Hæstarétti Innlent Einar horfir til hægri Innlent Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Innlent „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Innlent Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar Erlent Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Erlent Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Innlent Fleiri fréttir Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni Sammála Attenborough og segir tegundir þurrkaðar út Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið Slá færri svæði í nafni sjálfbærni „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Vesturbæjarlaug lokuð í þrjár vikur til viðbótar Bóndi spurði eftirlitsmann MAST hvort hann ætti að skjóta hann Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Björguðu stjórnvana bát í Faxaflóa Steinþór sýknaður í Hæstarétti Ósk um að heita Óskir hafnað Einar horfir til hægri Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Sjá meira