Evran hefði litlu breytt í hruninu gudsteinn@frettabladid.is skrifar 26. ágúst 2010 07:00 Þórarinn G. Pétursson „
Ég átti satt að segja von á því að aðild að myntbandalaginu myndi skipta meira máli,“ segir Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. Hann hefur ásamt Þorvarði Tjörva Ólafssyni hagfræðingi gert viðamikla rannsókn á heimskreppunni 2007-2009 og áhrifum hennar á 46 meðal- og hátekjulönd víðs vegar um heim. Þórarinn segir það hafa komið á óvart að í mælingum þeirra hafi ekki komið fram nein merki þess að aðild að evrusvæðinu hefði breytt miklu um áhrif kreppunnar. Hann tekur þó fram að ekki megi túlka þetta sem svo að rannsóknin sýni að evran hefði engu breytt hér á landi. „Það er ekkert útilokað að efnahagsaðstæður í aðdraganda kreppunnar hefðu verið allt öðruvísi ef landið hefði verið í myntbandalaginu, þó að það hafi ekki mælst í rannsókninni,“ segir Þórarinn. Þórarinn kynnti rannsókn þeirra Þorvarðar á málstofu í Seðlabankanum á þriðjudag. Erindið sitt nefndi hann „Hið fjármálalega gjörningaveður 2007-9“ og gaf því undirtitilinn „Af hverju fauk Ísland um koll en önnur lönd sluppu betur?“ Meginniðurstaða rannsóknarinnar, hvað Ísland varðar, ætti að sögn Þórarins varla að koma mörgum á óvart: „Þar skipti mestu að hér var mjög skuldsettur einkageiri og mjög stórt bankakerfi ásamt ójafnvægi í aðdraganda kreppunnar sem birtist til dæmis í hárri verðbólgu og miklum viðskiptahalla.“ Þetta rímar vel við það, sem almennt hefur verið talið, en tíðindin eru þó þau að rannsókn Þórarins og Þorvarðar staðfestir það sem margir höfðu haft á tilfinningunni. „Það er nú einu sinni okkar starf að koma með einhverja vísindalega staðfestingu eða afsönnun á þessu, og nú er sem sagt kominn rannsóknarlegur stuðningur við þessar fullyrðingar.“ Þórarinn segir annað hafa komið á óvart í niðurstöðum rannsóknarinnar, en það er hversu tvíbent áhrif hinn margrómaði gengissveigjanleiki hefur. „Í þeim löndum, þar sem gengis-sveigjanleikinn er meiri varð kreppan almennt bæði minni og styttri en annars staðar,“ segir Þórarinn, „en á móti eru líkurnar á því að fara í banka- og gjaldeyris-kreppu meiri eftir því sem gengissveigjanleikinn er meiri.“ Þórarinn mun kynna þessa rannsókn frekar á ráðstefnu sem haldin verður í Seðlabanka Slóvakíu snemma í næsta mánuði, þar sem fjallað verður um evrusvæðið og fjármálakreppuna.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Sjá meira