Ofurtollum beitt gegn samkeppni peturg@frettabladid.is. skrifar 26. ágúst 2010 05:30 Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, var boðaður á fund Jóns Bjarnasonar landbúnaðarráðherra vegna tollamála í gær ásamt fulltrúum Félags atvinnurekenda.
Innflutningur á ostum og kjöti er nær útilokaður eftir að landbúnaðarráðherra breytti aðferð við álagningu tolla. Neytendur borga þúsundum króna meira fyrir hvert kíló af innfluttri vöru eftir breytingu. Íslensk stjórnvöld hafa valið dýrustu leiðina fyrir neytendur við álagningu tolla á innflutt matvæli síðustu tvö ár. Neytendur borga þúsundum króna meira fyrir hvert kíló af erlendum ostum og kjöti en ef stjórnvöld beittu annarri mögulegri aðferð við álagningu tollanna. Eins og kunnugt er gilda mjög strangar takmarkanir um innflutning á mjólkurvörum og kjöti. Til að vernda samkeppnisstöðu innlendrar framleiðslu eru lagðir á háir tollar jafnvel þegar magnið sem flytja má inn er bundið takmörkunum. Samtök verslunar og þjónustu standa í stappi við stjórnvöld vegna þess hvernig tollum hefur verið beitt síðustu tvö ár. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri samtakanna, segir að alveg frá árinu 1995 til ársins 2008 hafi stjórnvöld beitt magntollum á erlendu framleiðsluna, þ.e.a.s. ákveðið að tollarnir væru föst krónutala á hvert kíló. Núverandi landbúnaðarráðherra hafi hins vegar ákveðið í fyrra að hætta aðferð forveranna og nýta gamla heimild í alþjóðasamningi til þess að beita verðtollum. Vegna þessa geta tollarnir nú numið 180-200% ofan á innkaupsverð. „Þessir tollar hafa leitt til þess að það er nánast útilokað að flytja þessar vörur til landsins," segir Andrés. Auk tolla landbúnaðarráðherrans sjái gengisþróunin undanfarin ár um að verðleggja innflutta osta og kjöt út úr innlendum matvöruverslunum. Samtök verslunar og þjónustu hafa gert útreikningana sem birtir eru í töflu með fréttinni sem sýna hvernig verð á innfluttum rjómaosti og kjúklingabringum er miðað við eldri aðferð við tollaálagningu annars vegar og miðað við aðferðina sem nú er beitt hins vegar. Miðað er við 20% álagningu í heildsölu og smásölu, sem Andrés segist telja raunhæft, og 7% vsk. á matvæli. Niðurstaðan er allt að 3.000 króna munur á kílói af rjómaosti eftir því hvort eldri eða nýrri tollaaðferðin er notuð og um 1.800 króna munur á kílóverði innfluttra kjúklingabringna. Andrés var boðaður á fund í landbúnaðarráðuneytinu í gær til þess að ræða tollamálin og sagðist ætla að gera þær kröfur þar við ráðherrann að verðtollar verði aflagðir og aðeins magntollum beitt.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Sjá meira