Danir elska og hata Tryggðarpant Auðar 6. janúar 2010 06:00 Elskuð og hötuð. Danskir gagnrýnendur skiptast algjörlega í tvo hópa þegar kemur að dönsku útgáfunni af Tryggðarpanti Auðar Jóns. Sumir elska hana, öðrum þykir lítið til hennar koma og finnst hún jafnvel barnaleg. Fréttablaðið/Vilhelm „
Bókin er skrifuð í Danmörku og er innblásin af umræðunni þar. Danir eru svo klofin þjóð, þar er allt annaðhvort eða," segir Auður Jónsdóttir en bók hennar Tryggðarpantur eða Depositum, eins og hún heitir á dönsku, kom nýverið út í Danmörku. Danskir gagnrýnendur skiptast algjörlega í tvo hópa; sumir hrósa henni í hástert eins og bókarýnir Metroexpressen sem gefur henni fimm stjörnur. Og líkir bókinni við Dýrabæ George Orwell. Í sama streng tekur rýnir Literatursiden sem telur að lesandinn fái marbletti á samviskuna við lesningu bókarinnar. Þá hafa forsvarsmenn danskra bókasafna valið bókina sem eina af skáldsögum ársins 2009. Og mæla sérstaklega með því að danskir lesendur láti ekki hræðast af kápu bókarinnar sem skartar heldur ófrýnilegu svíni. Gagnrýnandi Politiken er hins vegar alls ekki hrifinn, slátrar nánast bókinni á síðum blaðsins, segir Auði skjóta langt yfir markið með bókinni og áfellist hana fyrir að hafa sleppt „hinu jarðbundna akkeri Íslendingsins". „Auður var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir Fólkið í kjallaranum en hún fær enga tilnefningu fyrir þessa bók," skrifar Sören Winterberg en til gamans má geta að hann er pabbi Thomasar Winterberg sem gerði hina frábæru dogma-mynd Festen. „Hann gaf mér draumadóm fyrir Fólkið í kjallaranum og kannski bjóst hann við annarri svona fjölskyldudramabók," segir Auður og bætir því við að hún hafi drukkið þrjú viskíglös þegar hún las dóm Winterberg. „Þetta hefur verið svona, annað hvort viskídrykkja eða skálað í kampavíni," segir Auður og hlær. Hún hafi þó alveg eins búist við því að sumir í Danmörku yrðu ekki hrifnir og svona bók með pólitískri skírskotun ætti náttúrlega ekki að eiga við alla. Hún verður engu að síður í stóru viðtali við Politiken á laugardaginn kemur og fær þá tækifæri til að skýra sitt mál. En það er öðru tímabili að ljúka í lífi Auðar því hún hefur verið hirðskáld Borgarleikhússins í heilt ár. Hún segir það vera eitt það skemmtilegasta sem hún hafi gert á ævinni. „Ég er búin að vera að skrifa í heilt ár og við erum bara að lesa og skoða verkið með dramatúrgum. Það hefur bara verið æðislega gaman og ég veit bara ekki hvort ég geti skrifað skáldsögu án þess að hafa dramatúrg mér við hlið," segir Auður. Þegar hún er síðan spurð um hvað verkið fjalli er svarið mjög skýrt og skorinort. „Verkið fjallað um barnaníð og tjáningarfrelsi," útskýrir skáldið en ráðgert er að það komi á fjalir leikhússins árið 2011. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Fleiri fréttir Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Sjá meira