Landspítalinn þjónustar sjúklinga frá Færeyjum 19. ágúst 2010 16:00
Landspítalinn hefur gert tímamótasamning um þjónustu við sjúklinga frá Færeyjum. Samkvæmt samningnum verður sjúklingum sem Færeyingar þurfa að senda til annarra landa alla jafna vísað til Landspítalans en til þessa hafa sjúklingar í Færeyjum aðallega verið sendir til Danmerkur og Svíþjóðar. Þetta er fyrsti samningurinn sem gerður er við annað land um alhliða sjúkrahúsþjónustu á Íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landspítalanum. Um er að ræða rammasamning um sölu sjúkrahúsþjónustu Landspítala. Kaupandi er færeyska heilbrigðisráðuneytið fyrir hönd landssamtaka sjúkrahúsa í Færeyjum. Samningurinn nær til hvers konar sjúkrahúsþjónustu og á grunni hans má semja um frekari samvinnu svo sem að læknar Landspítlanum veiti þjónustu á sjúkrahúsum í Færeyjum. Grundvöllur fyrir frekara samstarfi „Samningurinn skapar grundvöll að frekara samstarfi, t.d. um meðferð sjaldgæfra sjúkdóma. Hann stuðlar að meiri nýtingu mjög dýrra tækja og búnaðar og hraðari endurnýjun á honum. Samningurinn getur líka aukið möguleika Landspítala á að taka upp nýja þjónustu sem áður hefur verið veitt erlendis þar sem fleiri sjúklingum stæði hún til boða nú en áður," segir í tilkynningunni. „Þannig geta líka skapast tækifæri fyrir heilbrigðisstarfsfólk með sérstaka þjálfun að flytja heim til Íslands og fá starf við hæfi." Samningurinn var undirritaður í Þórshöfn í Færeyjum í dag. Samninginn undirrituðu Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, og Poul Geert Hansen, ráðuneytisstjóri færeyska heilbrigðismálaráðuneytisins. Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, og Aksel V. Johannesen, heilbrigðisráðherra Færeyja, staðfestu samninginn jafnframt með undirritun sinni.
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Birtu ekki baulið Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Fleiri fréttir Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Sjá meira