Elvar bestur í þuklinu | Myndir 19. ágúst 2010 15:18 Bolvíkingurinn Elvar Stefánsson fyrir miðju. Íslandsmeistaramótið fór fram um síðustu helgi í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum.
Íslandsmeistaramótið í hrútadómum var nýverið haldið í áttunda sinn á Ströndum og var það Bolvíkingurinn Elvar Stefánsson sem fór með sigur af hólmi í flokki vanra þuklara. Hann hefur keppt í þuklinu svo til frá upphafi og náði meðal annars öðru sæti árið 2005. Þrátt fyrir mikla rigningu hafa áhorfendur og keppendur aldrei áður verið fleiri, að því er fram kemur í tilkynningu. Elvar hlaut því til varðveislu í eitt ár verðlaunagripinn Horft til himins sem er tileinkaður minningu Brynjólfs Sæmundssonar ráðunautar á Hólmavík, auk fjölda annarra verðlauna. Aðrir verðlaunahafar í flokknum hafa komið áður við sögu hrútadómanna. Í flokki óvanra fór Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir með sigur af hólmi með aðstoð hinnar þriggja ára gömlu Emmu Ýr Kristjönudóttur.Hrútasæði meðal verðlauna Hrútarnir sem voru dæmdir voru þeir Spaði, Grafar, Hvellur og Fleygur, en allir eru þeir í eigu Jóns Stefánssonar á Broddanesi utan þess síðastnefnda sem er í eigu Matthíasar Lýðssonar í Húsavík. Það voru 24 sem kepptu í óvana flokknum en 22 tóku þátt í flokki hinna vönu. Verðlaun voru afar vegleg, að því er fram kemur í tilkynningunni, meðal annars fengu sigurvegararnir í vana flokknum 5, 10 og 15 skammta af hrútasæði frá Sauðfjársæðingarstöð Vesturlands. Margir aðrir vinningar voru einnig veittir keppendum í þremur efstu sætum í hvorum flokki frá Bændasamtökum Íslands, Sauðfjársetrinu, Strandagaldri, Malarhorni á Drangsnesi, Hólmadrangi, Strandalambi í Húsavík og Strandakúnst á Hólmavík.- Sigurvegarar í flokki vanra hrútaþuklara: 1) Elvar Stefánsson, Bolungarvík 2) Björn Torfason, Melum í Árneshreppi 3) Eiríkur Helgason, Stykkishólmi - Sigurvegarar í flokki óvanra hrútaþuklara: 1) Emma Ýr Kristjönudóttir, Hólmavík (3ja ára) og Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir, Keflavík 2) Guðný Hrund Þorsteinsdóttir, Reykjavík (11 ára) 3) Birna Ingimarsdóttir, Kaldrananesi í Bjarnarfirði
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent „Síminn stoppar ekki“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Sjá meira