Innlent

Slapp naumlega undan snjóflóði

Strákagöng.
Strákagöng.
Ökumaður bíls slapp naumlega undan stóru snjóflóði, sem féll á Siglufjarðarveg, Siglufjarðarmegin við Strákagöng laust eftir klukkan tíu í gærkvöldi. Ökumaður bíls sem kom á eftir óttaðist að bíllinn hefði grafist í flóðinu og kallaði á lögreglu og björgunarsveit, en þá kom í ljós að hann hafði naumlega sloppið inn í göngin þegar flóðið skall á veginum. Flóðið er sagt stórt og varar lögregla við að fleiri flóð geti falllið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×