Árni Matt hættur - neitaði því í morgun 26. febrúar 2009 10:44
Árni Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, hefur ákveðið að hætta í stjórnmálum og gefa ekki kost á sér í framboði til Alþingis í komandi kosningu. Í yfirlýsingu sem hann sendir flokkssystkynum sínum í Suðurkjördæmi segir hann að á ferðum sínum um kjördæmið undanfarið hafi berlega komið í ljós að vilji sé til breytinga innan Sjálfstæðisflokksins. Árni vildi ekkert kannast við það í morgun að hann væri að hætta. „Þó ég sé allur af vilja gerður til þess að bregðast við þessu kalli um breytingar má ljóst vera að því eru takmörk sett hvað ég get gert í þeim efnum af augljósum ástæðum. Ég hef því ákveðið að gefa ekki kost á mér í prófkjöri flokksins þann 14. mars næstkomandi vegna kosninganna 25. apríl í vor. Það er hlutverk leiðtoga að leiða en það er líka nauðsynlegt fyrir leiðtoga að vita hvenær á að víkja," segir Árni. Að lokum þakkar Árni öllum sem starfað hafa með sér í kjördæminu á undanförnum árum en hann hefur verið í kjördæminu í eitt kjörtímabil. „Á átján ára þingferli hef ég verið 1. þingmaður í þremur kjördæmum og ráðherra í tæp tíu ár í í ráðuneytum sjávarútvegs og fjármála. Öllum þeim sem með mér hafa starfað færi ég þakkir fyrir samstarfið. Sérstaklega vil ég þó þakka þeim sem hefðu viljað styðja mig í prófkjörinu í næsta mánuði og vona að ég valdi þeim ekki of miklum vonbrigðum með ákvörðun minni," segir Árni að lokum. Þegar Árni var inntur eftir því í morgun hvort hann væri að hætta í pólitík sagði hann: Árni: „Hvaða vitleysa?" Blaðamaður: „Þetta er ekki rétt?" Árni: „Nei, nei." Blaðamaður: „Þannig að þú ert bara kokhraustur?" Árni: „Já, já." Blaðamaður: „Þetta eru ekki réttar fréttir?" Árni: „Nei, þetta eru ekki réttar fréttir."
Mest lesið Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira