Íslensk hjón segjast svikin 22. febrúar 2009 18:40
Íslenskum hjónum, með fjögur ung börn, og feðgum var flogið heim frá Danmörku í gær á kostnað ríkisins eftir að hafa misst allt sitt í hendur Íslendings sem þau saka um að hafa vísvitandi nýtt sér neyð þeirra og haft af þeim aleiguna. Neyðin var slík að íslenska sendiráðið í Danmörku sendi þeim pening í vikunni til að börnin syltu ekki. Það var í lok nóvember sem hjónin fréttu af auglýsingu í Fréttablaðinu þar sem Íslendingar er rekur svokallað Íslendingasetur í aflögðu elliheimili á Lálandi í Danmörku býður fólki hér betra líf. Fólki er boðin aðstoð og öruggt umhverfi og dönskunám meðan á atvinnuleit stendur. Hjónin voru bæði atvinnulaus, eiga saman fjögur börn og það fimmta er á leiðinni. Með von um betri framtíð í Danmörku flugu þau út ásamt bróður konunnar og sonar hans. Þau segja að forstöðumaður Íslendingasetursins, Baldvin Björnsson, hafi sagt að næga vinnu væri að hafa, börnin kæmist strax í skóla og þau í dönskunám. Ekkert stóðst segja þau hjón. Síðastliðin mánudag leituðu þau til sendiráðsins íslenska í Danmörku og ákváðu síðan að reyna komast heim. Þau flugu síðan heim í gær á kostnað félagsmálaráðuneytisins. Þau vara fólk við að trúa gylliboðum eins og þessum og saka Baldvin um að hafa vísvitandi nýtt sér neyð þeirra. Forsvarsmaður Íslandssetursins hafnar fullyrðingum hjónanna. Í samtali við fréttastofu sagðist hann hafa nýtt peninga, sem þau lögðu inn á reikning hans, til að borga húsleigu en afganginn hafi þau fengið greiddan í dönskum krónum.
Tengdar fréttir Björguðu átta manns eftir ótrúlega hrakningar „Þetta voru þrír fullorðnir einstaklingar og svo fimm börn," segir Óskar Björn Óskarsson sem sótti átta manns til Reesnæs Strandvej í Danmörku en þau voru þar aðframkominn eftir að hafa verið svikinn um vinnu og pening. Um íslenska fjölskyldu er að ræða en með henni var vinur þeirra. Þau voru á þrítugsaldri en börnin frá tveggja ára aldri til ellefu ára. 21. febrúar 2009 17:21 Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Innlent Fleiri fréttir Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna Segist hafa áhyggjur af stöðunni í Evrópu Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Sjá meira
Björguðu átta manns eftir ótrúlega hrakningar „Þetta voru þrír fullorðnir einstaklingar og svo fimm börn," segir Óskar Björn Óskarsson sem sótti átta manns til Reesnæs Strandvej í Danmörku en þau voru þar aðframkominn eftir að hafa verið svikinn um vinnu og pening. Um íslenska fjölskyldu er að ræða en með henni var vinur þeirra. Þau voru á þrítugsaldri en börnin frá tveggja ára aldri til ellefu ára. 21. febrúar 2009 17:21