Samfylkingarkona notuð í auglýsingu Framsóknar Valur Grettisson skrifar 19. apríl 2009 15:24 Auglýsing Framsóknar. „
Þetta er virðingaleysi og skeytingaleysi og í raun vandræðalegt klúður," segir Marsibil Sæmundsdóttir, varaborgarfulltrúi, en ef glöggir menn skoða nýjustu kosningaauglýsingar Framsóknarflokksins, þá má sjá hana glaðbeitta undir slagorðinu: „Frumkvæði fyrir okkur öll." Marsibil er við hægra megin við orðið „öll“. Um er að ræða auglýsingu sem birtist í Fréttablaðinu í gær og svo aftur í Morgunblaðinu í dag. Auglýsingin er samansett af mörgum einstaklingum úr öllum áttum og myndar nokkurskonar mósaík. Í miðju auglýsingarinnar er slagorð flokksins, þar við hliðina á, helstu frambjóðendur flokksins - og svo Marsibil. Skemmst er frá því að segja að Marsibil yfirgaf Framsóknarflokkinn á síðasta ári, en hún hafði verið flokksbundinn varaborgarfulltrúi flokksins um nokkura ára skeið. Þegar Framsóknarflokkurinn tók aftur upp samstarf við Sjálfstæðisflokkinn á síðasta ári í borgarstjórn þá var Marsibil nóg boðið, og hún yfirgaf flokkinn. Nú, tæpu ári síðar, þá dúkkar hún upp á ný undir formerkjum flokksins í auglýsingunni. „Það er fullt af fólki búið að hafa samband við mig út af þessu, fólk veltir því fyrir sér hvort ég sé kominn aftur í Framsókn," segir Marsibil hneyksluð og áréttar í eitt skipti fyrir öll; hún er flokksbundin Samfylkingunni. „Ég hringdi í gær í tengil innan Framsóknarflokksins og benti þeim á þetta. Mér var lofað bót og betrun," segir Marsbil en árangurinn varð þó ekki betri en svo að auglýsingin birtist aftur daginn eftir, nú í Morgunblaðinu. „Þetta er bara algjörlega pointless og fáránlegt," segir Marsibil sem er ekki skemmt yfir auglýsingaklúðri Framsóknaflokksins sem virðist skreyta sig með stolnum flokksfjöðrum.
Mest lesið Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira