Hrunið skilur eftir úrgang í þjóðgarði 5. nóvember 2009 06:00 Á Valhallarstíg Umgengnin á lóð Ágústs Guðmundssonar í þjóðgarðinum við Þingvallavatn er mjög slæm að sögn formanns Þingvallanefndar.Fréttablaðið/Vilhelm
Gróður í friðlandi þjóðgarðsins við Þingvallavatn liggur undir skemmdum á sumarhúsalóð Ágústs Guðmundssonar við Þingvallavatn. Ágúst, sem kenndur er við fyrirtækið Bakkavör og eignarhaldsfélagið Existu, keypti lítið sumarhús úr timbri á Valhallarstíg í apríl 2006. Bústaðurinn var síðan rifinn á árinu 2007 og framkvæmdir hafnar við tvöfalt stærra steinsteypt hús sem nú hefur staðið hálfkarað frá því að fjármálakerfi landsins hrundi í byrjun október í fyrra og framkvæmdir stöðvuðust. Síðan hefur mikill úrgangur, meðal annars mörg tonn af grjóti sem Ágúst lét sprengja úr klöppinni á landinu, legið í stórum pokum ofan á viðkvæmum gróðri á lóðinni. Álfheiður Ingadóttir, formaður nýrrar Þingvallanefndar sem tók við í haust, segir aðspurð að nefndin hafi enn ekki stuggað við Ágústi vegna frágangsins á lóðinni. „Ég held að menn viti svo sem alveg af hverju þessi viðkomandi einstaklingur hefur ekki haldið áfram byggingarframkvæmdum. Hitt er annað mál að umgengni á byggingarstað er mjög slæm og hlýtur að koma til kasta nefndarinnar að skoða hvernig hægt er að bregðast við því,“ segir Álfheiður og minnir á að mikill styr hafi staðið um framkvæmdina, meðal annars vegna þess að notuð var þyrla við efnisflutninga. Endurbygging hefur staðið yfir á tveimur öðrum lóðum við Valhallarstíg. Meðal annars á lóð Lauga ehf. sem er í eigu Björns Leifssonar og Hafdísar Jónsdóttur í World Class og lóð hjónanna Boga Pálssonar, fyrrverandi forstjóra Toyota, og Sólveigar Dóru Magnúsdóttur. Þingvallanefnd hefur að sögn Álfheiðar ekki samþykkt útgáfu neinna nýrra byggingarleyfa í þjóðgarðinum frá því eftir alþingiskosningarnar síðasta vor. Öll slík mál eru nú í endurskoðun hjá Þingvallanefnd.gar@frettabladid.is Ágúst Guðmundsson Álfheiður Ingadóttir Úrgangur
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira