Edduverðlaununum hugsanlega breytt 15. september 2009 03:30 Björn Brynjúlfur, formaður ÍKSA, segir hugsanlegt að Eddunni verði breytt; hún færð til janúarloka eða byrjun febrúar. Aðeins ein íslensk mynd hefur verið frumsýnd á núverandi Eddutímabili; R.W.W.M. sem hefur fengið misjafna dóma í fjölmiðlum. „
Það hefur engin formleg ákvörðun verið tekin en það hefur verið rætt að breyta fyrirkomulaginu á Edduverðlaununum,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, formaður ÍKSA, íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Samkvæmt gamla skipulaginu hefði Eddutímabilinu átt að ljúka í lok októbermánaðar. Sem hefði getað þýtt að aðeins ein íslensk mynd hefði komið til greina sem besta myndin; Reykjavik Whale Watching Massacre. Desember eftir Hilmar Oddsson og Jóhannes í leikstjórn Þorsteins Gunnars Bjarnasonar hefðu kannski náð þarna inn með herkjum en frumsýningardagar þeirra hafa verið sagðir í október. Þetta hefur þó ekki verið staðfest. Björn Brynjúlfur tekur engu að síður skýrt fram að þessar breytingar á fyrirkomulaginu hafi ekkert með þessa tilviljun að gera, heldur hafi þær verið lengi í deiglunni innan ÍKSA. Björn segir að ef breytingin gangi í gegn muni Eddutímabilið færast til á árinu. „Eddan yrði þá ekki fyrr en í lok janúar eða byrjun febrúar. Þær myndir sem hafa verið frumsýndar á þessu ári koma því til greina. En það hefur ekkert verið formlega ákveðið,“ segir Björn. Með þeirri tilfærslu myndi fjölga um að minnsta kosti tvær myndir; bæði Mamma Gógó eftir Friðrik Þór og Bjarnfreðarson í leikstjórn Ragnars Bragasonar verða frumsýndar á annan í jólum. Þá eru framleiðendur The Good Heart að velta því fyrir sér hver sé heppilegasti tíminn fyrir frumsýningu. Á imdb.com er því haldið fram að hún verði frumsýnd á annan í jólum en Þórir Snær Sigurjónsson, einn af framleiðendum myndarinnar, segir þá dagsetningu ekki koma til greina.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Sjá meira