Hituðu upp fyrir Peaches 4. desember 2009 05:00 Steed Lord vinnur hörðum höndum að því að koma sér og tónlist sinni á framfæri. mynd/Dröfn Ösp snorradóttir
Íslenska hljómsveitin Steed Lord hitaði upp fyrir tónlistarkonuna Peaches á tónleikum hennar í Los Angeles fyrir stuttu. Þrír meðlimir Steed Lord fluttu búferlum til borgar englanna fyrr í sumar og vinna nú ötullega að tónlist sinni. „Peaches bað okkur persónulega um að túra með sér um vesturströnd Bandaríkjanna. Við kynntumst henni og manni hennar í Berlín þegar við spiluðum þar fyrir þremur árum. Þau eru frábær og hafa alltaf stutt mjög við bakið á okkur. Við gátum þó aðeins spilað á þrennum tónleikum með henni því við vorum sjálf á leið í tónleikaferðalag um Evrópu,“ útskýrir Svala Björgvinsdóttir, söngkona hljómsveitarinnar. Aðspurð segir hún að gaman hafi verið að hita upp fyrir Peaches því hún dragi að sér skemmtilega og líflega áhorfendur. „Það er líka alltaf gaman að spila fyrir svona mikinn fjölda fólks, það er eins og að fá adrenalínsprautu,“ segir Svala. Mikill fjöldi fólks sótti tónleikana og á meðal áhorfenda voru einnig þekktir einstaklingar á borð við Peaches Geldolf, dóttur hungurpopparans Bobs Geldof, og fatahönnuðurinn Jeremy Scott. Aðspurð segir Svala hljómsveitina vekja eftirtekt vegna þjóðernisins og segir fólk almennt forvitið um land og þjóð. „Við skerum okkur úr vegna þess að við erum Íslendingar, fólki finnst það áhugavert. En að baki velgengninni liggur líka rosalega mikil vinna og við erum núna að uppskera það sem við höfum sáð. Okkur gengur vel og það er vegna þess hve mikið við vinnum að því og vegna þess að við elskum það sem við gerum. Það kemur aldrei neitt upp í hendurnar á manni, maður þarf að vinna fyrir því og þannig hefur okkar hugarfar alltaf verið.“ Svala, Einar og Eddi munu eyða jólunum heima á Íslandi og dvelja hér í nokkra daga. Hún segir jólafríið vera fyrsta frí hljómsveitarmeðlima í langan tíma. „Mér finnst alltaf jólalegast á Íslandi. Þegar við komum heim verður bara slappað af og borðað mikið af góðum mat.“ Eftir jólafrí fer hljómsveitin aftur til vinnu, en hún er um þessar mundir að semja og taka upp nýtt efni fyrir plötu sem kemur út eftir áramót.
Mest lesið Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Lífið Fullkominn brúðkaupsdagur í sænskum kastala Lífið Skiptir stærðin raunverulega máli? Lífið Ástin sem eftir er framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Lífið Stígur út fyrir ramma raunveruleikans Tíska og hönnun Einbýlishús með möguleika á makaskiptum Lífið Stórstjörnur í mögulegum ástarþríhyrningi Lífið Leikur Elsu Lund í fatla eftir vondan skell Lífið Segir Gleðigönguna ekki vera fyrir sig en styður baráttuna Lífið Fleiri fréttir Fullkominn brúðkaupsdagur í sænskum kastala Skiptir stærðin raunverulega máli? Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Taylor Swift trúlofuð Taumlaus gleði og stjörnum prýddir tónleikar Stórstjörnur í mögulegum ástarþríhyrningi Leikur Elsu Lund í fatla eftir vondan skell Segir Gleðigönguna ekki vera fyrir sig en styður baráttuna Einbýlishús með möguleika á makaskiptum Sagan þegar Villi Vill ákvað að lagið Söknuður yrði í eigin jarðarför Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Dansinn dunaði á Menningarnótt Will Smith sakaður um að falsa áhorfendur með gervigreind Lil Nas X laus gegn tryggingu „Blessaður, þú ert með heilaæxli“ Woody Allen segist enginn aðdáandi Pútíns Ein glæsilegasta leikkona landsins selur slotið Lil Nas X ákærður fyrir brot á alríkislögum Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið „Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“ Fagurkeri selur miðbæjarperlu „Ég trúði því aldrei að ég yrði þessi gaur“ Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Stjörnulífið: Maraþon, brúðkaup og gellugallinn Myndaveisla: Vestri fékk konunglegar móttökur á Ísafirði Kom með blóðugar tær í mark eftir heilt maraþon berfættur Tóku hlé í miðju hlaupi til að halda tónleika Skúli hannaði hof fyrir Grímu Sjá meira