Aftur hættur í Chili Peppers 18. desember 2009 02:15 red hot chili peppers John Frusciante (lengst til vinstri) hefur sagt skilið við félaga sína í Red Hot Chili Peppers.
Gítarleikarinn John Frusciante er hættur í hljómsveitinni Red Hot Chili Peppers. Hann segist á heimasíðu sinni í raun hafa hætt fyrir ári. „Þegar ég hætti í hljómsveitinni fyrir rúmu ári vorum við komnir í frí um óákveðinn tíma," skrifaði Frusciante. „Það var engin dramatík eða reiði í gangi og hinir strákarnir voru mjög skilningsríkir. Þeir skilja að ég vil gera það sem gerir mig hamingjusaman og þannig líður mér líka gagnvart þeim. Tónlistin sem ég aðhyllist núna hefur einfaldlega leitt mig í aðra átt," skrifaði hann og bætti við: „Mér þykir mjög vænt um hljómsveitina og það sem við gerðum en núna langar mig að gera mína eigin tónlist." Þetta er í annað sinn sem Frusciante yfirgefur Red Hot Chili Peppers. Síðast hætti hann árið 1992, þremur árum eftir að hann gekk til liðs við sveitina. Hann átti erfitt með að venjast frægðinni og lagðist í mikla fíkniefnaneyslu. Árið 1998 fór hann í meðferð og gekk í kjölfarið aftur til liðs við sína gömlu félaga. Frusciante hefur tekið upp fimm hljóðversplötur með Red Hot Chili Peppers, þar á meðal hinar vinsælu Blood Sugar Sex Magik og By The Way. Síðasta plata sveitarinnar, hin tvöfalda Stadium Arcadium, kom út árið 2006. Frusciante var kjörinn átjándi besti gítarleikari allra tíma af tímaritinu Rolling Stones árið 2003. Orðrómur er uppi um að Josh Klinghoffer, sem hefur spilað á sólóplötum Frusciante, sé þegar genginn til liðs við Chili Peppers.
Mest lesið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Bryndís Líf orðin móðir Lífið Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Kokkakonur „kjafta, skála og knúsa“ í nýjum samtökum Matur Fleiri fréttir „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ Sjá meira