Frumvarp um álver í Helguvík samþykkt - þinginu lokið 17. apríl 2009 20:59 Frá Alþingi
Frumvarp um heimild til samninga um álver í Helguvík var samþykkt á Alþingi nú í kvöld með þrjátíu og átta atkvæðum gegn níu en þrettán þingmenn voru fjarverandi. Þegar búið var að samþykkja frumvarpið var þinginu slitið af Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, bjallan glumdi og þingmenn féllust í faðma. Þingmenn Vinstri grænna greiddu allir atkvæði á móti frumvarpinu en það gerði Mörður Árnason þingmaður Samfylkingar einnig. Þórunn Sveinbjarnardóttir fyrrverandi umhverfisráðherra sat hjá. Í lok þingsins tók Guðbjartur Hannesson forseti Alþingis til máls og hvatti alþingismenn og stjórnmálasamtök til þess að halda í góða og heiðarlega kosningabaráttu sem væri þingheimi til sóma. Hann þakkaði starfsfólki þingsins sem og þingmönnum samstarfið. Því næst tók Arnbjörg Sveinsdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins til máls og þakkaði hlýjar kveðjur í sinn garð. Hún þakkaði starfsfólki þingsins sérstaklega það æðruleysi sem það sýndi þegar atburðirnir fyrir utan Alþingi stóðu sem hæst í janúar. Hún þakkaði þeim þingmönnum sem eru að láta af störfum samstarfið og óskaði þeim alls hins besta á nýjum vettvangi. Arnbjörg sagði að kosningabaráttan sem nú væri framundan hafi verið gefinn óvernju stuttur tími. Hún vonaði hinsvegar að sú barátta yrði drengileg og þjóðinni allri til heilla. Hún bað þingmenn síðan að rísa úr sætum ef þeir tækju undir þessi orð hennar. Þingheimur reis úr sætum. Því næst las Jóhanna Sigurðardóttir upp bréf sem hún ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni forseta rituðu í gær um að fresta þingstörfum. Hún óskaði þingmönnum og starfsmönum þingsins allra heilla og sagði þinginu frestað. Þá gall bjallan og þingmenn risu úr sætum og föðmuðu hvorn annan.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Fleiri fréttir Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Sjá meira