Borgarahreyfingin lýsir yfir stuðningi við Hagsmunasamtök heimilanna 4. maí 2009 21:35 Borgarahreyfingin
Þingflokkur Borgarahreyfingarinnar telja aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna íbúðaskulda ganga allt of skammt samkvæmt tilkynningu sem hreyfingin sendi frá sér fyrir stundu. Þar segir einnig að flokkurinn lýsi yfir stuðningi við meginkröfur Hagsmnassamtaka heimilanna. „Ekki nægir að bregðast við vanda heimila sem þegar eru komin í þrot. Gera þarf ráðstafanir til að koma í veg fyrir að tugþúsundir heimila fari sömu leið," segir í tilkynningunni. Tilkynningu hreyfingarinnar má lesa orðrétt hér fyrir neðan: Þinghópur Borgarahreyfingarinnar lýsir yfir stuðningi við meginkröfur Hagsmunasamtaka heimilanna. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna íbúðarskulda ganga alltof skammt. Ekki nægir að bregðast við vanda heimila sem þegar eru komin í þrot. Gera þarf ráðstafanir til að koma í veg fyrir að tugþúsundir heimila fari sömu leið. Fyrsta stefnumál Borgarahreyfingarinnar eru neyðarráðstafanir í þágu heimilanna og hljóðar svo: „Alvarleg skuldastaða heimilanna verði tafarlaust lagfærð með því að færa vísitölu verðtryggingar fram fyrir hrun hagkerfisins (til janúar 2008). Höfuðstóll og afborganir húsnæðislána lækki til samræmis við það. Raunvextir á verðtryggðum lánum verði að hámarki 2-3% og afborgunum af húsnæðislánum megi fresta um tvö ár með lengingu lána. Skuldabyrði heimila vegna gengistryggðra íbúðalána verði lagfærð í samræmi við verðtryggð íbúðalán. Í framhaldinu verði gert samkomulag við eigendur verðtryggðra húsnæðislána um að breyta þeim í skuldabréf með föstum vöxtum og verðtryggingarákvæði í lánasamningum verði afnumin." Með réttu er spurt hver skuli bera kostnaðinn af þessum aðgerðum. Svarið fæst með því að spyrja hver muni bera kostnaðinn af gjaldþroti tugþúsunda heimila og þrotnum greiðsluvilja fólks. Um leið yrði að svara spurningunni um það hver greiði kostnaðinn af þeim mannlega harmleik sem hvert gjaldþrota heimili getur orðið. Það stendur upp á ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur að svara. Óvenjulegar aðstæður krefjast óhefðbundinna úrræða. Lausn á skuldavanda heimilanna þolir ekki lengri bið. Reykjavík 3. maí 2009 Þingflokkur Borgarahreyfingarinnar - þjóðin á þing.
Mest lesið Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Innlent Indland gerir árás á Pakistan Erlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Innlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent „Hún gat ekki gefið neinar skýringar á þessu, hvorki mér né lögreglunni“ Innlent Boða sprengingar við Hvammsvirkjun í allt sumar Innlent Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Erlent Konan í Bríetartúni komin á götuna Innlent Fékk rætin skilaboð vegna veðmála eftir að hafa klikkað á vítum Innlent Fleiri fréttir Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Boða sprengingar við Hvammsvirkjun í allt sumar Moskítóflugur muni koma til Íslands Áberandi ráðamenn „keppist við að hnykla vöðva sína, beita hótunum og þvingunum“ Ekki inni í myndinni að fyrirkomulag hvalveiða haldist óbreytt Fékk rætin skilaboð vegna veðmála eftir að hafa klikkað á vítum Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Álfurinn í landsliðsbúningi í ár Líflátshótanir í kjölfar veðmála og óttaslegin eftir útburð Þrír fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys við Smáralind Ekki talin yfirvofandi hætta en maðurinn geti orðið hættulegur Núverandi fyrirkomulag „virðist hylma yfir ábyrgð og gagnsæi“ Ítarleg skýrsla á borði ráðherra Inga skipar konu í stað karls í stjórn HMS Óboðlegt að vera „friðardúfur“ í kosningabaráttu og horfa síðan þögul á „hryllingsmynd í beinni“ Líkur á nýju gosi munu aukast þegar líða fer á haustið „Því miður er þetta þrautalending“ Reikningum Flokks fólksins lokað um stund „Hún gat ekki gefið neinar skýringar á þessu, hvorki mér né lögreglunni“ Konan í Bríetartúni komin á götuna Hækkandi matarverð hringir bjöllum hjá ráðherra Viðvörunarbjöllur óma vegna verðhækkana Lítur það grafalvarlegum augum ef ráðherra fari ekki að lögum Treystir Ingu til að leggja mat á hæfi stjórnarmanna og að lögum sé fylgt Konungshjónin tóku á móti Höllu og Birni Hasar við Bríetartún 20: Verið að bera konuna út „Þetta er salami-leiðin“ Gunnlaugur Claessen er látinn Bætir í vind og úrkomu í kvöld Sjá meira