Töluverð hreyfing á vinnumarkaði 4. maí 2009 12:10
Nokkur hreyfing virðist nú vera á vinnumarkaði og atvinnuleysið stendur að mestu leyti í stað. Töluverð hreyfing er á vinnuaflinu og er svipað streymi inn og út af atvinnuleysisskrá. Það þýðir að nokkuð sé um að fólk sé að fá vinnu og segir Karl Sigurðsson, sviðsstjóri vinnumálasviðs Vinnumálastofnunar, að meiri hreyfing sé nú á markaðnum. Samt sem áður sé nokkuð um nýskráningar á atvinnuleysisskrá, en þeim hafi fækkað mikið frá því sem var í janúar og febrúar. Verið er að fara yfir allar skráningar og eru nú um og yfir sautján þúsund og sjö hundruð manns skráðir atvinnulausir eða í hlutastarfi á móti bótum. Þessi tala hefur ekki breyst mikið síðustu vikur. Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í apríl. Fleiri hópar hafa þó misst vinnu sína vegna þess að fyrirtæki hafa farið í þrot eða lagt niður starfsemi, en almennt er ekki tilkynnt um slíkt til stofnunarinnar. Töluvert virðist vera um að fólk flytji af landi brott eða íhugi að flytjast búferlum. Þannig hefur Vinnumálastofnun gefið út talsverðan fjölda vottorða, sem gefur fólki leyfi til að leita að vinnu erlendis á atvinnuleysisbótum frá Íslandi eða staðfestir að fólk hafi verið á vinnumarkaði hérlendis og eigi því rétt á bótum erlendis. Slík vottorð eru yfirleitt veitt útlendingum, en þó eru dæmi um að Íslendingar hafi útvegað sér það. Samkvæmt tölum Hagstofunnar af fyrsta ársfjórðungi ársins fluttu fleiri frá landinu en til þess - voru brottfluttir 711 umfram aðflutta. Gera má ráð fyrir að inni í þessari tölu séu margir útlendir starfskraftar sem snúið hafa heim vegna efnahagslægðarinnar. Til nokkurs samanburðar má geta þess að allt árið í fyrra komu fleiri til landsins en fóru frá því - voru aðfluttir umfram brottflutta rúmlega ellefu hundruð.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent „Ég er mjög kátur“ Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Fleiri fréttir „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Sjá meira