Innlent

Jarðskjálfti í nótt vakti fólk víða

Snarpur jarðskjálfti upp á 3,7 á Richter varð laust fyrir klukkan þrjú í nótt og átti hann upptök í Skálafelli. Hans varð meðal annars vart í Reykjavík og vakti íbúa í Hveragerði, Selfossi og á Eyrarbakka. Margir sunnlendingar hringdu í Neyðarlínu og lögreglu, minnugir stóra Suðurlandsskjálftans.

Að sögn lögreglu á Selfossi er ekki vitað um neitt tjón, en hvinur heyrðist á undan skjálftanum, sem var eitt högg. Skömmu síðar varð eftirskjálfti, sem ekki fannst. Á sömu slóðum varð skjálfti upp á 2,4 á Richter um níuleytið í gærmorgun, en hans varð lítið vart.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×