Hátt í tuttugu sófasettum stolið í Dugguvogi Breki Logason skrifar 10. september 2009 10:38 Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Starfsmenn húsgagnaverslunarinnar Patta ehf. í Dugguvogi ráku upp stór augu þegar þeir mættu til vinnu í morgun. Í nótt hafði verið farið inn í tvo gáma fyrir utan verslunina og 10-12 glænýjum sófasettum stolið. Í fyrrinótt voru 4-6 sófasett tekin. Tjónið er vel á fjórðu milljón króna. Þórarinn Hávarðsson sölustjóri segir tjónið gríðarlegt. „Í fyrrinótt var farið inn í einn gám og 4-6 sett tekin. Það var einnig tjaldvagn í gámnum sem þeir létu vera," segir Þórarinn í samtali við fréttastofu. Í gærdag var tjaldvagninn seturr inn í verslunina og stórum flutningabílum lagt fyrir gámana. Þjófarnir létu það hinsvegar ekki stöðva sig og fóru aftur í gáminn, líklega til þess að taka tjaldvagninn að sögn Þórarins. Þegar þeir gripu í tómt þar fóru þeir í annan gám og tóku 10-12 sófasett eins og fyrr segir. Um er að ræða svokölluð 3-1-1 sófasett sem eru mjög plássfrek að sögn Þórarins. Þjófarnir hafa því verið á stórum flutningabíl og hafa líklega farið í gámana í nótt eða seint í gærkvöldi. Þórarinn segir húsgagnamarkaðinn lítinn hér á landi og því sé líklegt að menn komi þessu úr landi sem fyrst. „Þú selur ekkert fimmtán til átján sófasett á markaði hér á landi." Aðspurður hvort tryggingarnar nái yfir tjónið segir Þórarinn að verið sé að skoða það, ólíklegt sé þó að þær nái yfir vörur sem eru í gámum. „Þetta er alveg hræðilegt og mikil blóðtaka fyrir okkur. Ef einhver hefur séð mannaferðir þarna í nótt væri gott ef þeir hefði samband við okkur."
Mest lesið Íslensk stúlka í útskriftarveislu sem breyttist í martröð Innlent Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Innlent Margrét Hauksdóttir er látin Innlent Tíu milljónum fátækari eftir augnablik af einbeitingarleysi Innlent Nauðlending á þjóðveginum Innlent Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum Innlent Líkir aðalfundi Sósíalista við Warhammer-útsöluna í Nexus Innlent Eldur kviknaði í hjólhýsi við íbúðarhús Innlent Náðar spilltan fógeta Erlent Segir Guðmund Hrafn ekki sjá bjálkann í eigin auga Innlent Fleiri fréttir Erfiðast að læra íslenskuna Afnema lengri opnunartíma í ákveðnum leikskólum borgarinnar Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Utanríkisráðherra Bretlands á leið til Íslands Eldur kviknaði í hjólhýsi við íbúðarhús Fjórða hvert ungmenni talar sjaldnar en einu sinni í viku við foreldra sína Ungliðahreyfing Viðreisnar ályktar gegn ákvörðun ríkisstjórnarinnar Lýstu yfir óvissustigi vegna sömu flugvélar Hefur lagt tillögur á borðið en tjáir sig ekki um lögreglustjóra Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum Áhyggjuefni hversu fáir treysta íslenskum fjölmiðlum Uppsagnir yfirvofandi á Húsavík Hnífi beitt í heimahúsi á Húsavík Frábiður sér að nördum sé líkt við Sósíalista Íslensk stúlka í útskriftarveislu sem breyttist í martröð Fyrrverandi þingmenn í nýrri stjórn Evrópuhreyfingarinnar Segir Guðmund Hrafn ekki sjá bjálkann í eigin auga Mannréttindadómstóllinn sýknar ríkið af kröfum mótmælenda Flestir urðu varir við „falsfréttir“ fyrir síðustu alþingiskosningar Margrét Hauksdóttir er látin Líkir aðalfundi Sósíalista við Warhammer-útsöluna í Nexus Þorbjörg sögð bjóða Helga embætti vararíkislögreglustjóra Nauðlending á þjóðveginum Tíu milljónum fátækari eftir augnablik af einbeitingarleysi Lækkandi fæðingartíðni ekki hundaflauta: „Ég bara hafna algjörlega forsendunum“ Hætt í VG og segir spillingu grassera í íslenskum stjórnmálum Ný forysta stefni í ranga átt „Einhver erfiðasti tími sem ég hef gengið í gegnum“ „Og ég treysti því að dómstólar snúi því við“ Sendir í leyfi fyrir að vinna ekki nógu mikið Sjá meira