Löngu tímabær Bítlaútgáfa 3. september 2009 04:30 Fjórtán endurhljóðblandaðar Bítlaplötur verða gefnar út næsta miðvikudag og bíða margir spenntir eftir þeim.
Bítlarnir eru á allra vörum um þessar mundir, bæði vegna nýs tölvuleiks og vegna þess að fjórtán plötur þeirra eru að koma út í endurhljóðblönduðum útgáfum. Á sama tíma og nýjar endurhljóðblandaðar útgáfur virðast koma út með sama flytjanda á nokkurra ára fresti hefur varla verið hreyft við Bítlaplötunum í 22 ár, eða síðan Capitol/EMI gaf gömlu vínylplöturnar út á geisladiskum í fyrsta sinn. Mörgum Bítlaaðdáendum þótti hljómurinn á diskunum ekki komast nálægt vínylplötunum í gæðum og allar götur síðan hefur eftirspurnin aukist jafnt og þétt eftir vönduðum útgáfum sem hæfa þeirri frábæru hljómsveit sem Bítlarnir sannarlega voru. Hópur sérfræðinga í Abbey Road-hljóðverinu í London, öðru heimili Bítlanna, eyddi fjórum árum í endurhljóðblöndun platnanna með aðstoð nýjustu tækni og vísinda. Á sama tíma pössuðu þeir sig á því að halda í þá töfra sem upphaflegu upptökurnar bjuggu yfir. Endurútgáfurnar, sem koma út næsta miðvikudag, samanstanda af öllum tólf hljóðversplötum Bítlanna, Magical Mystery Tour-plötunni og safnplötunum Past Masters Vol I. og II., sem verður komið fyrir á einum disk. Öllum fjórtán útgáfunum fylgir DVD-mynddiskur með heimildarmyndum um gerð þeirra, auk veigamikils umslags með hinum ýmsu upplýsingum. Einnig verður gefið út boxið The Beatles in Mono sem samanstendur af tíu Bítlaplötum sem voru hljóðblandaðar í mono-útgáfu. Á miðvikudag kemur einnig út tölvuleikurinn The Beatles: Rock Band sem er ætlað að ná til yngri Bítlaaðdáenda. Leikurinn er sá þriðji í Rock Band-seríunni en áður hafa komið út Rock Band I og II. Í leiknum geta fjórir þátttakendur spilað samtímis eins og hljómsveit með aðstoð „hljóðfæra“ og hljóðnema. Einnig geta þeir raddað rétt eins og Bítlarnir voru þekktir fyrir. Í leiknum eru 45 lög frá öllum ferli sveitarinnar auk þess sem Bítlarnir sjálfir sjást spila lögin með aðstoð sýndarveruleika. Leikurinn var gerður með samþykki og aðstoð Apple Corps, fyrirtækis Bítlanna, þar á meðal þeirra Pauls McCartney og Ringos Starr. Að auki tók Dhani, sonur George Harrison, þátt í gerð leikjarins og einnig Giles Martin, sonur upptökustjóra Bítlanna, George Martin.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Andlátið virðist ekki hafa borið að með saknæmum hætti Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira