Fái 110 milljónir króna fyrir vegstæði 29. október 2009 04:00 Fyrir tvöföldu.n Byrjað var að breikka Vesturlandsveg ofan við Blikastaði í Mosfellsbæ á árinu 2005 og þurfti að taka land við vegstæðið eignarnámi. Fréttablaðið/GvA
Einkahlutafélagið Bleiksstaðir á að fá greiddar rúmar 110 milljónir króna frá Vegagerð ríkisins samkvæmt niðurstöðu Matsnefndar eignarnámsbóta. Greiðsluna á Vegagerðin að inna af hendi fyrir 4,4 hektara lands með Vesturlandsvegi í landi Blikastaða milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur. Hluta landræmunnar sem um ræðir tók Vegagerðin til handargagns þegar á árinu 1976 en þurfti breiðari spildu vegna breikkunar sem gerð var á Vesturlandsvegi á árunum 2005 og 2006. Bleiksstaðir, sem eignuðust Blikastaði snemma á árinu 2008, vildu að miðað yrði við verð byggingarlands á þeim tíma sem félagið keypti jörðina. Landið hafi getað nýst undir byggingar. Vegagerðin sagði óraunhæft að miða verðið við árið 2008 og að landið væri óbyggingarhæft, meðal annars vegna halla og nálægðar við þjóðveginn. Matsnefndin segir engan virkan markað vera með land til nýbygginga á svæðinu og að fjöldi ný- og hálfbyggðra húsa sé til sölu. Markaðsástandið sé mun lakara nú en í október 2004 þegar Vegagerðin fékk umráð yfir landinu. Við matið verði því að líta til markaðsverðs ársins 2004 og taka tillit til þess tíma sem liðinn er frá því ári. Þá féllst matsnefndin á það með Vegagerðinni að landið hafi aldrei hentað til bygginga, bæði vegna landhallans og ákvæða í vegalögum. - gar
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira