Einkennileg hugmynd um alþingiskosningar 4. janúar 2009 09:00 „
Þetta hlýtur að vera úthugsað hjá þeim en þessi afstaða formanns Samfylkingarinnar er samt einkennileg," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, um þá tillögu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur að kosið verði til Alþingis samfara hugsanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þorgerður bendir á að ef ákveðið verði að fara í aðildarviðræður þá gæti það ferli tekið tólf til sextán mánuði. Ef síðan næðist samkomulag um aðild þá þyrfti að breyta stjórnarskrá til þess að af henni gæti orðið. „Til þess þarf að kjósa vegna þess að tvö mismunandi þing þurfa að samþykkja breytingu á stjórnarskrá. Og ef það á að fara kjósa til þings samfara þjóðar-atkvæðagreiðslu þá mun þingið ekki fá neitt svigrúm til þess að fara yfir efnismiklar stjórnarskrárbreytingar. Ég trúi því einfaldlega ekki að menn ætlist til þess að það verði kosið tvisvar á einu ári til Alþingis. Það væri nú ekki til að einfalda málin og stuðla að þeiri auknu festu í samfélaginu sem við þurfum," segir Þorgerður. Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur nefnt þann möguleika að þjóðin greiði atkvæði um hvort fara eigi í aðildarviðræður. Þorgerður segir það fyrirkomulag vissulega koma til greina þótt hún sé ekki reiðbúin að taka af skarið um það núna hvort það sé rétta leiðin. „Þingið ætti að minnsta kosti að taka þá pólitísku ákvörðun," segir Þorgerður, sem sjálf kveðst sífellt sannfærðari um að rétt sé að ganga til viðræðna að ákveðnum forsendum gefnum sem varða auðlindir Íslendinga. Sjálfstæðismenn muni fyrir sitt leyti taka skýra afstöðu til Evrópumála á komandi landsfundi. „Eins og menn vita eru skiptar skoðanir innan flokksins en stjórnmálamenn eiga að taka skýra afstöðu á grundvelli upplýsinga og það munum við gera." - gar
Mest lesið Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Erlent Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi Innlent Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Erlent Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Innlent Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Innlent Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Innlent Kaus að styðja karlasamtök í stað lögreglu Innlent Trump segir Nielsen í vondum málum Erlent Trump sýndi verkamanni puttann Erlent Baráttan um Samfylkinguna í borginni nálgast suðumark Innlent Fleiri fréttir Boðaður á fund í ráðuneytinu með stuttum fyrirvara Sögulegur fundur um framtíð Grænlands Tveir fulltrúar taka þátt í aukinni hernaðarviðveru Tveir handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar Kaus að styðja karlasamtök í stað lögreglu Ræddu undanþágu losunarheimilda Brutu stjórnsýslulög við útgáfu hvalveiðileyfis Jafnlaunavottunin verður lögð af á þessu ári Ljósvistarhönnuður hoppar hæð sína af gleði vegna breytinga Skoða dóma MDE í ráðuneyti og refsiréttarnefnd Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi „Látið undan þrýstingi stóru fyrirtækjanna í búvöruframleiðslu“ Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Bleikja strauk út í sjó úr landeldi Fundað um Grænland og Inga vill aðgreina eftir íslenskukunnáttu Dómur MDE hljóti að vera stjórnvöldum alvarlegt umhugsunarefni Á skilorði eftir að hafa kýlt, skallað og bitið konu sína Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Baráttan um Samfylkinguna í borginni nálgast suðumark 90 prósentum landsmanna þótti skaupið gott Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Alþingi kemur saman í dag eftir jólafrí Vongóð um stuðning Miðflokksins Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Notað á Íslandi þrátt fyrir að hafa mistekist annars staðar Bláklukka bar þremur lömbum á bænum Viðvík í Skagafirði Borgin beri ábyrgð sem eigandi Grænlendingar hnykla vöðvana og altjón í Gufunesi Mál látins manns komið til ákærusviðs Fellur frá máli sínu á hendur Hödd Sjá meira