Góðgerðar þolfimiveisla 5. september 2009 05:00 Unnur Pálmarsdóttir stendur fyrir Fusion fitness festival, en Páll Óskar mun opna hátíðina með þolfimi- og dansveislu til styrktar Umhyggju. „
Við ætlum að taka höndum saman og hreyfa okkur til góðs,“ segir Unnur Pálmarsdóttir framkvæmdastjóri Fusion Fitness Festival sem fram fer helgina 11. og 12. september í World Class Laugum. Þetta er í sjöunda sinn sem Unnur stendur fyrir hátíðinni. Eins og fyrri ár mun Páll Óskar Hjálmtýsson opna hátíðina og vera plötusnúður í þolfimi- og dansveislu föstudaginn 11. september kl. 18 í Laugum. Aðgangseyrir er 1.000 krónur, en allur ágóðinn mun renna óskiptur til Umhyggju, stuðningsfélags langveikra barna. „Þetta er þriðja árið í röð sem við höfum góðgerðartíma. Fyrir tveimur árum studdum við Blátt áfram, í fyrra var það Kraftur, stuðningshópur ungs fólks sem hefur greinst með Krabbamein og núna völdum við Umhyggju. Við slógum öll met í fyrra, en þá mættu um 160 manns. Gólfið hreinlega hristist og við söfnuðum yfir 100 þúsund krónum sem við afhendum strax í lok tímans.“ útskýrir Unnur, en sjö erlendir kennarar munu vera á hátíðinni auk fjölda íslenskra kennara. „Nú vonum við bara að það mæti enn fleiri. Góðgerðartíminn er fyrir alla, það er ekkert aldurstakmark og það er frábært að geta látið gott af sér leiða með því að dansa,“ segir Unnur. Allar frekari upplýsingar og dagskrá Fusion Fitness Festival er að finna á fusion.is. - ag
Mest lesið Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Lífið Kemur Önnu miðli til varnar: „Þið megið segja að ég sé auðtrúa asni“ Lífið Mari og Njörður eiga von á sumarbarni Lífið Auglýsing Blush sé fyrir neðan allar hellur Lífið „Ég fékk alveg gæsahúð þegar ég sá þetta“ Tíska og hönnun Móðirin hljóp frá þremur börnum og „fór í Kanann“ Lífið Þau eru tilnefnd fyrir verstu kvikmyndagerð síðasta árs Bíó og sjónvarp Ofurnæmni Önnu Birtu: Hefur heyrt hugsanir fólks í Kringlunni Lífið Blint stefnumót heppnaðist vel Menning Staðgöngumóðir „öruggasta leiðin“ til að stækka fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Fengu gefins sjö nýjar þrautir frá breska þrautahöfundinum Mari og Njörður eiga von á sumarbarni Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Kemur Önnu miðli til varnar: „Þið megið segja að ég sé auðtrúa asni“ Ofurnæmni Önnu Birtu: Hefur heyrt hugsanir fólks í Kringlunni Désirée prinsessa látin Staðgöngumóðir „öruggasta leiðin“ til að stækka fjölskylduna Auglýsing Blush sé fyrir neðan allar hellur Kynntist manninum á Tinder í Covid Vance á von á barni Heiða og Hildur djömmuðu með Breiðhyltingum Ekki fyrsti fótboltamaður Binna: „Við getum alveg hist aftur og riðið“ Ótrúlegur dagur Vignis: Lottóvinningur, 180 í pílu og sigur á Carlsen Vesturbæingar blótuðu þorrann langt fram á nótt Valdi sér fylkingu í Beckham-deilunum Móðirin hljóp frá þremur börnum og „fór í Kanann“ „Ég hef aldrei séð dansandi poka“ Eldri bróðir lagði línur að lífinu í New York Opinberar erjur Beckham-fjölskyldunnar: „Ég vil ekki sættast við fjölskyldu mína“ Fagna tíu árum af ást Þekkja Kringlugestir borgarstjórann? Aron Mola ástfanginn í bíó Krútteyjurnar Ischia og Sikiley: Ástu leist ekki á einnar evru húsin Rybak snýr aftur en frægir bræður sniðganga Havana-heilkennið heldur áfram að kveikja samsæriskenningar Stjörnulífið: Áslaug náði ekki að tala Trump til „Kynlíf okkar hjóna hefur breyst mikið síðustu ár“ Greipur telur Trump hafa ruglast á Grænlandi og Íslandi „Ég er til í að gera allt svo ég þurfi ekki að grafa þriðja barnið mitt í viðbót“ Krakkatía vikunnar: Fjöll, friðarsúlan og geimurinn Sjá meira