Þrír tenórar með stórtónleika 18. desember 2009 01:00 tenórarnir þrír Snorri Wium, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Kolbeinn Ketilsson halda stórtónleika í Háskólabíói 3. janúar.fréttablaðið/vilhelm „
Ég hef aldrei séð eins flott prógram. Þetta verða gríðarlega flottir tónleikar,“ segir tenórinn Jóhann Friðgeir Valdimarsson. Hann, ásamt tenórunum Kolbeini Ketilssyni og Snorra Wium, syngur á stórtónleikum í Háskólabíói 3. janúar. Með þeim á sviðinu verður Sinfóníuhljómsveit Íslands og karlakórinn Fóstbræður. Tenórarnir þrír hafa undanfarin tíu ár haldið tónleika saman hér á landi en aldrei eins stóra og þessa og aldrei í byrjun ársins. „Það er búinn að vera draumur lengi að gera þetta svona glæsilega. Við höfum oft verið spurðir hvenær við verðum með Sinfóníunni en það hefur ekki orðið. En þetta eru frambærilegustu tenórar þjóðarinnar í dag, það er engin spurning. Þetta eru mennirnir sem eru að gera hvað mest erlendis,“ segir Jóhann Friðgeir. Snorri Wium er nýfluttur heim eftir að hafa búið í Þýskalandi undanfarin ár og Kolbeinn Ketilsson býr í Köln í Þýskalandi. Jóhann sjálfur hefur verið heima á Íslandi síðustu tvö ár en stefnir á ýmis verkefni í Evrópu á næsta ári. En eru íslensku tenórarnir jafngóðir og Pavarotti, Domingo og Carreras þegar þeir voru og hétu? „Þú verður að láta aðra dæma um það. Það fer eftir því hvort hljóðmennirnir verða duglegir að búa til gott sánd en við gerum okkar besta,“ segir Jóhann og brosir. - fb
Mest lesið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Bryndís Líf orðin móðir Lífið Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Kokkakonur „kjafta, skála og knúsa“ í nýjum samtökum Matur Fleiri fréttir „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ Sjá meira