Innlent

Laxveiðiferðir heita ráðgjafaþjónusta á bankamáli

Sólveig Bergmann skrifar

Laxveiðiferðir bankamanna virðast síður en svo liðnar undir lok. Fullyrt er að sá háttur sé hafður á að reikningar fyrir veiðferðir séu skráðir sem sérfræðiráðgjöf í bókhaldi ríkisbankanna.

Það er ekkert nýtt undir sólinni að fulltrúar stórfyrirtækja og banka hafi liðkað fyrir viðskiptum við árbakkann. Upp úr 1980 var þetta kannski einn veiðitúr á sumri undir þeim formerkjum að verið væri að greiða fyrir samningaviðræðum.

Eftir því sem einkavæðingin ágerðist blés þetta út. Bestu laxveiðiár landsins voru fullbókaðar allt sumarið. Þeir sem til þekkja segja erlendum viðskiptamönnum þá hafa fækkað, í þerra stað voru það stjórnendur bankanna og kunningjahópar innan þeirra sem sinntu sínu áhugamáli.

Dæmi eru um að veislutjöld hafi verið reist við árnar, þar sem uppáklæddir þjónar sinntu veiðimönnum sem einnig nutu lifandi tónlistar, úti í móa.

Það var þá sem sérstök félög sem sáu um ferðirnar spruttu upp. Veiðiferðin var þá skilgreind sem ráðgjafaþjónusta á reikningi og skráð sem slík í bókhaldi bankanna.

Eftir bankahrun dró verulega úr ferðum bankanna í laxveiði. Jafnvel gefið út að engar veiðiferðir yrðu farnar í ár, þrátt fyrir að sumir bankanna hefðu keypt veiðileyfi einhver ár fram í tímann.

En þrátt fyrir dræmt sumar herma heimildir fréttastofu að þessi háttur sé enn hafður á.

Bankarnir kaupi veiðileyfin ekki beint heldur láti þriðja aðila sjá um kaupin, sem svo fóðri reikninginn með allt öðru, líkt og ráðgjafaþjónustu.

Eða eins og einn heimildarmanna fréttastofu orðar það: "Þessir sömu menn sitja enn við kjötkatlana í bönkunum og virðast ekki geta hætt að ljúga og stela"










Fleiri fréttir

Sjá meira


×