Unnur Birna gerist söngkona 27. ágúst 2009 01:00 Stóð sig eins og hetja Unnur Birna ásamt Sigrúnu Gylfadóttur en Unnur Birna sýndi og sannaði að hún fær í flestan sjó, líka söng. „
Við vissum að bæði Stefán Karl Stefánsson og Laddi væru hörkusöngvarar og að Stefán Hallur gæti alveg haldið lagi. En Unnur Birna kom okkur alveg skemmtilega á óvart,“ segir Þorsteinn Gunnar Bjarnason, leikstjóri kvikmyndarinnar Jóhannes. Leikarahópnum var nýlega smalað í hljóðver til að taka upp titillag myndarinnar. Lagið er eftir Vidda í Greifunum sem sér jafnframt um alla tónlist myndarinnar. Þorsteinn veit ekki til þess að þetta hafi verið gert áður, að leikarar syngi titillagið sjálfir. „Ég fékk bara þessa hugmynd og það leist öllum svo vel á hana, svona hefur stemningin líka bara verið á tökustað, allir hafa bara verið í góðum fíling og tilbúnir að gera nánast allt.“ Það vekur kannski helst athygli að Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, fyrrum alheimsfegurðardrottning og kynnir í Bandinu hans Bubba, skuli þarna þreyta frumraun sína fyrir framan hljóðnemann. Þorsteinn segir að hún hafi staðið sig eins og hetja. „Hún vissi sjálf ekkert hvort hún gæti sungið, ég sagði henni að það væri hægt bjarga nánast öllu í hljóðveri. En svo söng hún bara eins og engill,“ segir Þorsteinn sem lýsir laginu sem svona „feelgood“-slagara. Sem sé í anda myndarinnar. Á ýmsu hefur samt gengið við gerð kvikmyndarinnar og Fréttablaðið greindi frá því þegar slagsmálasenur fóru aðeins úr böndunum við Kaldársel í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að Laddi sjálfur var allur blár og marinn en Stefán Hallur fékk skurð á hausinn eftir að nafni hans mölvaði blómapott á höfði hans.- fgg
Tengdar fréttir Logi Geirs og Bjöggi láta gott af sér leiða „Ég rakst á frétt á netinu um Alexöndru Líf og hún snerti mig mjög mikið. Þetta er fjölskylda sem hefur þurft að þola ansi mikið og þarf á stuðningi að halda," segir Björgvin Páll Gústavsson, markvörður íslenska landsliðsins í handbolta og ein af silfurhetjunum. Hann og Logi Geirsson hafa ákveðið að gefa Alexöndru Líf áritaða Silver-landsliðstreyju með áritunum frá öllum leikmönnum handboltalandsliðsins. Þá hafa þeir keypt tíu miða á styrktartónleika Alexöndru. 27. ágúst 2009 06:00 Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Loni Anderson er látin Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum Lífið Terry Reid látinn Lífið Calvin Harris orðinn faðir Lífið Fleiri fréttir Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Terry Reid látinn Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum „Mig langar ekki lengur að deyja“ Loni Anderson er látin „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Calvin Harris orðinn faðir Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Robert Wilson er látinn Gary Busey játar kynferðisbrot Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Einar og Milla eignuðust dreng Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Sjá meira
Logi Geirs og Bjöggi láta gott af sér leiða „Ég rakst á frétt á netinu um Alexöndru Líf og hún snerti mig mjög mikið. Þetta er fjölskylda sem hefur þurft að þola ansi mikið og þarf á stuðningi að halda," segir Björgvin Páll Gústavsson, markvörður íslenska landsliðsins í handbolta og ein af silfurhetjunum. Hann og Logi Geirsson hafa ákveðið að gefa Alexöndru Líf áritaða Silver-landsliðstreyju með áritunum frá öllum leikmönnum handboltalandsliðsins. Þá hafa þeir keypt tíu miða á styrktartónleika Alexöndru. 27. ágúst 2009 06:00