Enginn eyddi meira en 300 þúsund 6. nóvember 2009 01:30
Helmingur þeirra frambjóðenda til Alþingis, sem ekki höfðu skilað inn fjárhagsupplýsingum um framboð sitt til Ríkisendurskoðunar á miðvikudag, var úr VG, eða 18 af 36. Greint var frá því í blaðinu í gær að þessir frambjóðendur brjóta lög um fjármál stjórnmálasamtaka, og brotin eiga að geta kostað sex ára fangelsi. Drífa Snædal, framkvæmdastýra VG skýrir skussahátt frambjóðendanna með því að í forvali flokksins hafi verið óhemju mikil þátttaka, og að sáralítill kostnaður hafi verið við framboðin. „Við vorum með 103 í forvali sem eru jafnmargir og buðu sig fram í hinum flokkunum. Svo fór enginn yfir 300 þúsund krónur í kostnað, þar sem það var blátt auglýsingabann í forvalinu," segir hún. Samkvæmt lögum er þeim engu að síður skylt að greina frá því, að kostnaðurinn hafi verið þessi. Drífa segist hafa boðist til að senda senda Ríkisendurskoðun yfirlýsingu um þetta fyrir hönd alla frambjóðendanna en stofnunin hafi viljað fá yfirlýsingu frá hverjum og einum, skiljanlega, segir Drífa. Ekki einungis Ríkisendurskoðun hafi ýtt á eftir því við frambjóðendurna að skila inn upplýsingunum, heldur einnig skrifstofa flokksins. „Þannig að þetta er bara á þeirra ábyrgð," segir Drífa Snædal. Þess skal getið að í tilkynningu Ríkisendurskoðunar var nafn Fidu Abu Libdeh á lista yfir frambjóðendur í forvali VG, en hún tók ekki þátt í því. Skrifstofu VG varð á að setja Fidu á listann. Skussarnir voru því ekki 37, eins og sagt var í gær. - kóþ
Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Innlent Fleiri fréttir Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Sjá meira