St. Jósefsspítali lagður niður í núverandi mynd 7. janúar 2009 12:44 Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður heilbrigðisnefndar Alþingis.
Ásta Möller, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis, segir að áætlanir geri ráð fyrir að á St. Jósefsspítala verði rekin öldrunarþjónusta og starfsemi hans flutt á Landsspítalann og til Keflavíkur þar sem aðstæður eru betri. Orðrómur hefur verið uppi um að að breyta eigi spítalanum í núverandi mynd í öldrunarstofnun. Á spítalanum eru framkvæmdar á ári hverju fjöldi skurðaðgerða og eru hátt í 1000 manns á biðlista eftir að komast að á spítalanum. ,,Í Keflavík eru glænýjar skurðstofur sem eru mun betri en þær á St. Jósefsspítala en þær eru komnar mjög til ára sinna. Ef að spítalinn ætti að halda starfsemi sinni áfram í óbreyttu formi myndi það þýða verulegar endurbætur sem eru óþarfi út af skurðstofnum í Keflavík," segir Ásta. Umfangmiklar breytingar á heilbrigðiskerfinu Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, kynnir síðar í dag umtalsverðar breytingar á skipulagi og verkaskiptingu í heilbrigðisþjónustu í landinu, sem margir óttast að þýði niðurskurð, skerta þjónustu og uppsagnir starfsfólks í heilbrigðisþjónustunni. Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, krafðist þess í gær að heilbrigðisnefnd Alþingis yrði kölluð saman til að ræða fyrirhugaðar breytingar á heilbrigðisþjónustunni. Hún segir óásættanlegt að breytingarnar hafi ekki verið ræddar á Alþingi. Segir breytingarnar ekki úr lausu lofti gripnar ,,Það er ekki eins og þetta sé gripið úr lausu lofti. Í heilbrigðisþjónustulögum sem samþykkt voru vorið 2007 er gert ráð fyrir sameiningu heilbrigðisstofnanna og slík sameining hefur til að mynda þegar átt sér stað á Austurlandi," segir Ásta. Í lögunum er kveðið á um ákveðna þjónustu sem eigi að vera á hverju svæði. Jafnframt að tvö sérgreinasjúkrahús séu í landinu, en það eru Landsspítalinn og sjúkrahúsið á Akureyri. ,,Lögin segja skýrt hvernig verkaskiptingin er þannig að það ætti ekki að koma neinum þingmanni á óvart þó ráðherra kynni í dag nánari útfærslu," segir Ásta. Til hafi staðið að gera breytingarnar og aðstæður í efnahagsmálum hafi hraðað þeim. Heilbrigðisnefnd mun funda með Guðlaugi Þór á föstudaginn. Ásta segir að ekki hafi verið hægt að kalla nefndina fyrr saman. Óvíst með uppsagnir Breytingarnar þurfa ekki að þýða uppsagnir og starfsfólki á heilbrigðisstofnunum fækki, að mati Ástu. ,,Það þarf alls ekki að vera. Til að að mynda hefur víða úti á landi skort starfsfólk og oft hafa stofnanir sem haldið hafa úti sérhæfðri þjónustu þurft að kaupa dýru verði sérfræðinga annarsstaðar frá." Ásta telur að fyrirhugaðar breytingar komi til með draga úr slíkum kostnaði.
Tengdar fréttir Krefst þess að heilbrigðisnefnd komi saman Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, krefst þess að heilbrigðisnefnd Alþingis komi saman og ræði fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á starfsemi sjúkrastofnanna. Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hyggst kynna breytingarnar fundi með blaðamönnum á morgun. 6. janúar 2009 16:30 Umtalsverðar breytingar á heilbrigðisþjónstunni Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, kynnir umtalsverðar breytingar á skipulagi og verkaskiptingu í heilbrigðisþjónustunni í landinu á fundi með blaðamönnum í dag. Ráðgert er að sjúkrastofanir verði sameinaðar og aðrar jafnvel lagðar niður. Starfsmenn St. Jósefsspítala og Sólvangurs fordæmdu í gær vinnubrögð ráðherra en orðrómur er uppi um að að breyta eigi spítalanum í öldrunarstofnun. 7. janúar 2009 09:35 Starfsfólk St. Jósefsspítala fordæmir vinnubrögð ráðherra Starfsfólk St. Jósefsspítala og Sólvangurs lýsa yfir megnri óánægju og fordæma vinnubrögð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, í yfirlýsingu. ,,Við erum að gagnrýna samskiptaleysi og skort á upplýsingum til starfsfólks en óvissan hefur skapað óvissu kvíða um framtíð okkar og skjólstæðinga okkar," segir Ragnhildur Jóhannsdóttir deildarstjóri á skurðdeild spítalans. 6. janúar 2009 11:31 Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Sjá meira
Krefst þess að heilbrigðisnefnd komi saman Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, krefst þess að heilbrigðisnefnd Alþingis komi saman og ræði fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á starfsemi sjúkrastofnanna. Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hyggst kynna breytingarnar fundi með blaðamönnum á morgun. 6. janúar 2009 16:30
Umtalsverðar breytingar á heilbrigðisþjónstunni Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, kynnir umtalsverðar breytingar á skipulagi og verkaskiptingu í heilbrigðisþjónustunni í landinu á fundi með blaðamönnum í dag. Ráðgert er að sjúkrastofanir verði sameinaðar og aðrar jafnvel lagðar niður. Starfsmenn St. Jósefsspítala og Sólvangurs fordæmdu í gær vinnubrögð ráðherra en orðrómur er uppi um að að breyta eigi spítalanum í öldrunarstofnun. 7. janúar 2009 09:35
Starfsfólk St. Jósefsspítala fordæmir vinnubrögð ráðherra Starfsfólk St. Jósefsspítala og Sólvangurs lýsa yfir megnri óánægju og fordæma vinnubrögð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, í yfirlýsingu. ,,Við erum að gagnrýna samskiptaleysi og skort á upplýsingum til starfsfólks en óvissan hefur skapað óvissu kvíða um framtíð okkar og skjólstæðinga okkar," segir Ragnhildur Jóhannsdóttir deildarstjóri á skurðdeild spítalans. 6. janúar 2009 11:31