Innlent

Drógu logandi ruslagám frá leikskóla

Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Tveir menn sýndu mikið snarræði og komu í veg fyrir stórtjón þegar þeir drógu logandi ruslagám frá leikskólanum við Kiðagil á Akureyri á tíunda tímanum í gærkvöldi. Þá var eldurinn farinn að teygja sig i húsið og hafði rúða brotnað þannig að reyk var farið að leggja inn.

Þeim tókst að halda eldinum í skefjum á meðan þeir biðu slökkviliðsins, sem slökkti eldinn. Talið er víst að kveikt hafi verið í gámnum og sömuleiðis öðrum ruslagámi við verslunarmiðstöðina við Sunnuhlíð um svipað leyti. Þar voru mannvirki ekki í hættu en sést hafði til unglinga við gáminn rétt áður en eldurinn gaus upp. Lögreglan á Akureyri lýsir eftir vitnum að báðum atvikunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×