Streita, þunglyndi og kvíði í lögreglu 7. janúar 2009 06:00 Einn af hverjum tíu lögreglumönnum virðist upplifa þónokkra streitu. Álíka fjöldi upplifir þunglyndi og litlu færri kvíða, samkvæmt könnuninni. Með hliðsjón af því má reikna með að 70 lögreglumenn þurfi meðferð við streitu eða þunglyndi árlega.Fréttablaðið/Pjetur
Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu eru stressaðri, þunglyndari og kvíðnari en starfsbræður þeirra á landsbyggðinni. Þetta er meðal þess sem lesa má út úr nýbirtum niðurstöðum könnunar sem Ríkislögreglustjóri hefur látið gera á á streitu og líðan lögreglumanna. Í skýrslunni kemur einnig fram að stjórnsýslutengd streita virðist almennari og meiri en streita, sem beint er hægt að tengja verkefnum lögreglu, hvað varðar höfuðborgarsvæðið. Þar er fyrst og fremst nefndur skortur á starfsfólki, of mikið skrifræði, ósamkvæmi í stjórnunarstíl, skortur á úrræðum og ófullnægjandi búnaður. „Þetta eru einmitt atriði sem Landssamband lögreglumanna hefur verið að benda á í sínum málflutningi,“ segir Snorri Magnússon formaður Landssambands lögreglumanna (LL). Hann segir sambandið fagna skýrslunni. „Þar kemur fram stuðningur við málflutning LL síðastliðin ár varðandi álag á lögreglumenn, sem meðal annars hefur skapast af undirmönnun í lögreglu og breytingum sem gerðar voru á skipan lögreglu í upphafi árs 2007. Þar var, að mati LL, farið nokkuð bratt í hlutina.“ Snorri segir að ofan á þetta bætist svo við sífelldar kröfur um hagræðingu í ríkisrekstri sem gert hafi það að verkum, að mati LL, að ekki verði lengra farið í niðurskurði til löggæslu í landinu. LL hafi ítrekað bent á þessa hluti allt liðið ár til dæmis varðandi breytingar í lögreglu. Í skýrslunni kemur fram að gert sé ráð fyrir að sameiningarferli lögreglu höfuðborgarsvæðisins eigi að vera lokið innan fimm ára. „Þetta er, að mati LL, áhyggjuefni eigi lögreglumenn að búa þrjú ár til viðbótar við það óvissuástand sem varað hefur innan lögreglu undanfarin rúm tvö ár. Það kann ekki góðri lukku að stýra að á sama tíma og slíkt óvissuástand ríkir í þjóðfélaginu skuli lögreglumenn eiga að búa við áframhaldandi streituvalda í starfsumhverfi sínu umfram það sem „eðlilegt“ er.“ Niðurstöður könnunar Ríkislögreglustjóra benda enn fremur til þess að lögreglumenn sem lokið höfðu námi við Lögregluskóla ríkisins væru stressaðri, þunglyndari og kvíðnari en ófaglærðir starfsbræður vegna aukinnar ábyrgðar hinna fyrrnefndu. Þá líði yngri lögreglumönnum meira eins og þeir séu alltaf í vinnunni og eigi of lítinn tíma með fjölskyldu og vinum. jss@frettabladid.is
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Fleiri fréttir Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Sjá meira