Útgefandi Íslands yfirgefur skerið 23. nóvember 2009 06:00 Kveðjuhóf var haldið fyrir Baldvin Esra í Havarí á fimmtudagskvöldið. Að minnsta kosti tveir brjálaðir menn létu sjá sig. Fréttablaðið/Vilhelm „
Af hverju er ég að stinga af svona rétt fyrir jól? Nú, ég er bara að láta mig hverfa með alla peningana!“ segir Baldvin Esra Einarsson, hugsanlega í gríni. Hann hefur verið afkastamesti tónlistarútgefandi landsins síðustu misserin og séð um útgáfufyrirtækin Kimi og Borgin með fleirum. Nú dælast út plötur frá þessum fyrirtækjum en Baldvin flytur til Gent í Belgíu með allt sitt hafurtask um helgina. „Opinbera skýring er sú að ég er að fara að stýra útrásararmi Kimi/Borgin-samsteypunnar, en ég er nú bara að elta konuna mína. Hún er þarna í námi,“ segir hann. Baldvin segir að Gent sé miðsvæðis og því hafi í sjálfu sér verið upplagt að flytja. „Samgöngur á allar tónleikahátíðir og ráðstefnur í Evrópu eru auðveldar og það er auðveldara að byggja upp tenglanet upp á kynningu og dreifingu. Þetta hentar afskaplega vel. Annars hefði maður ekkert verið að þessu.“ Í fjarveru Baldvins mun annað gott fólk stýra útgáfumálum hjá Kima og Borginni. Starfsemin á að halda áfram á fullum dampi og ýmsar plötur eru á teikniborðinu fyrir næsta ár. Hjá Kima kemur til dæmis út plata með Míri og Borgin verður með Seabear, Klassart og nýja plötu með Sigurði Guðmundssyni. „Ég mun stýra Evrópuútgáfunni,“ segir Baldvin. „Við erum að fara að gefa út FM Belfast í Frakklandi í desember og svo kemur hún út í restinni af Evrópu í janúar og í Bandaríkjunum í febrúar. Svo munu fleiri plötur koma út, EP-plata með Benna Hemm Hemm í apríl og svo bara bætist við jafnt og þétt.“ - drg
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Rassaumhirða karla í sókn Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira