Rannsaka ímynd Íslands í kjölfar bankahrunsins 12. febrúar 2009 19:07
Síendurteknar fullyrðingar erlendra fjölmiðla um meint þjóðargjaldþrot Íslands hefur reynst íslenskum fyrirtækjum fjötur um fót. Útflutningsráð ætlar að rannsaka hvort viðhorf almennings í útlöndum gagnvart Íslandi hafi tekið breytingum eftir bankahrunið. Erlendir fjölmiðlar hafa sýnt Íslandi mikinn áhuga í kjölfar bankahrunsins en því miður fyrir okkur Íslendinga kemur sá áhugi ekki af góðu. Ímynd Íslands út á við virðist hafa tekið töluverðum breytingum eftir bankahrunið ef marka má erlendar umfjallanir. Því er til að mynda oftast slegið fram að landið sé gjaldþrota þrátt fyrir yfirlýsingar íslenskra ráðamanna um hið gagnstæða. Íslensk fyrirtæki líða nú fyrir þessa nýju ímynd enda byggja viðskiptasambönd að miklu leyti á gagnkvæmu trausti. Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs, segir óljóst á þessari stundu hvaða áhrif umræða erlendis hafi á stöðu og ímynd íslenskra fyrirtækja. ,,Auðvitað vitum við að mörg fyrirtæki hafa lent í því að eiga ekki aðgang að greiðslufrestum og öðru slíku. Þetta kemur sér auðvitað illa." Úflutningsráð í samvinnu við Ferðamálastofu ætlar á næstu mánuðum að láta gera könnun í Danmörku, Þýskalandi og Bretlandi til að meta viðhorf þessara þjóða til Íslands eftir hrun. Jón bendir á að þrátt fyrir þá álitshnekki sem íslenskst viðskiptalíf hafi orðið fyrir ríki víða erlendis mikil samúð í garð Íslendinga. ,,Ég er ekki viss um að öll íslensk fyrirtæki hafi slæma ímynd. Þetta er fjármálaímynd við megum ekki yfirfæra yfir á öll íslensk fyrirtæki en ég held að við munum aldrei fá neina jákvæða ímynd sem fjármálamiðstöð héðan í frá."
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira