Geir segir Jóhönnu fara með rangt mál 16. febrúar 2009 15:38
Geir Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins kom í pontu á Alþingi í dag undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir þar sem hann spurði Jóhönnu Sigurðardóttur út í samskipti forsætisráðuneytisins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Geir sakaði Jóhönnu um að hafa sagt ósatt þegar hún sagði að fyrstu athugasemdir sjóðsins við nýtt frumvarp um Seðlabanka Íslands yrði að fara með sem trúnaðarmál. Geir segist hafa grennslast fyrir um málið hjá sjóðnum og fengið þær upplýsingar að það væri íslenskra stjórnvalda að meta hvort upplýsingarnar væru trúnaðarmál. Geir krafðist þess að upphaflegu athugasemdirnar yrðu birtar og vildi hann fá að vita hvort þær væru að einhverju leyti öðru vísi en þær sem síðar bárust frá sjóðnum. Geir vildi einnig vita hvort Jóhanna hefði í málinu leitað til trúnaðarmanna Íslands hjá AGS. Jóhanna sagði að Birgir Ármannsson, sem beðið hefur um öll gögn í málinu, myndi að sjálfsögðu fá þau og þá myndi koma fram að AGS hefði óskað eftir því að trúnaður yrði virtur á fyrstu athugasemdunum. Hún mótmælti því þeim staðhæfingum að farið hefði verið rangt með staðreyndir í málinu og sagði hún alvegn á hreinu að engu hefði verið leynt. Jóhanna svaraði því hinsvegar ekki til hvort hún hefði leitað til trúnaðarmanna Íslands hjá sjóðnum. Þegar Geir kom aftur í pontu vakti hann athygli á því og spurði þingheim hvort það gæti haft með það að gera að aðalmaður Íslands hjá sjóðnum er Davíð Oddsson seðlabankastjóri og varamaður hans Bolli Þór Bollason, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu sem lét af störfum stuttu eftir að Jóhanna tók við ráðuneytinu.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Sjá meira