Semja í stað þess að vinna 12. september 2009 06:00 nolo Ívar Björnsson og Jón Baldur Lorange skipa hljómsveitina Nolo sem hefur vakið mikla athygli um þessar mundir. fréttablaðið/anton
Hljómsveitin Nolo sem er skipuð menntskælingunum Ívari Björnssyni og Jóni Baldri Lorange hefur vakið mikla athygli á síðunni Gogoyoko.com að undanförnu. Þeir félagar hafa átt mest spiluðu lögin á síðunni auk þess sem tvær stuttplötur þeirra hafa fengið góðar viðtökur. „Við byrjuðum að gera fyrsta lagið okkar árið 2008. Þetta byrjaði á því að ég fór í Góða hirðinn og fann gamlan tveggja hæða skemmtara og keypti hann,“ segir Ívar. Þeir félagar voru áður í hljómsveitinni Spooky Jetson sem tók þátt í Músíktilraunum 2007 og í Sidewalk. „Eftir marga trommara og bassaleikara enduðum við tveir, hann á gítar og ég á hljómborð og á bassanum. Við fórum að semja stanslaust og ákváðum að sleppa því að vinna í tvö sumur til að reyna að semja meira.“ Nolo spilar epíska rólegheitatónlist sem rennur sérlega ljúft í gegn. Áhrifavaldar þeirra félaga eru af ýmsum toga. Ívar hlustar á Marc Bolan og eitís-tónlist en einnig pönk og klassískt rokk, sem Jón er einnig hrifinn af ásamt blúsrokki. Ívar er afar þakklátur fyrir tækifærið sem þeir hafa fengið hjá Gogoyoko, sem nú er skráð með hátt í 900 íslenska flytjendur. „Þegar þetta var opnað fyrir almenningi sendum við lögin inn og upp úr öllum væntingum vorum við nr. 1. Gogoyoko hefur hjálpað okkur gríðarlega mikið að koma okkur á framfæri.“ Nolo gefur á næstunni út litla plötu hjá Braki, undirfyrirtæki Kimi Records. Einnig spilar sveitin á tónleikaröðinni Réttir sem verður haldin í Reykjavík síðar í mánuðinum. Áframhaldandi lagasmíðar og upptökur eru sömuleiðis á döfinni. „Við erum með svo ótrúlega mörg lög sem við erum að taka upp. Á hverri æfingu erum við að semja eitt eða tvö lög,“ segir Ívar og greinilegt að Nolo á framtíðina fyrir sér.freyr@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira