Tjúttað á fullu um jólin 22. desember 2009 06:45 Halda uppi stuði um jólin FM Belfast og Retro Stefson sameinast á Nasa, Bubbi verður á sínum stað á Þorláksmessu, Páll Óskar breytir Nasa í Stúdíó 54, Haukur Heiðar í Diktu verður á Sódómu og Bogomil Font tekur upp þráðinn með Millunum.
Tónleika- og skemmtanalífið í Reykjavík fer ekki í frí nema rétt yfir blájólin. Það er hellingur í gangi á Þorláksmessu og svo byrjar stuðið strax aftur á annan í jólum. Þorláksmessan hefur löngum verið vinsælt kvöld til tónleikahalds. Að sjálfsögðu eru Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens gamalgrónasti viðburðurinn, en hann heldur þessa tónleika nú í 25. skipti í Háskólabíói. Tónleikarnir verða sýndir í beinni á Stöð 2 og Bubbi ætlar ekkert að slá af heldur rífa kjaft ef hann er í þannig skapi. Bubbi var löngum í beinni á Rás 2 en í ár sér Buffið um Þorláksmessustuðið þar. Tónleikarnir verða sendir beint frá skemmtistaðnum Sódómu og Buffið fær til sín ýmsa gesti, meðal annars Magnús Eiríksson, Helgu Möller, Hauk Heiðar úr Diktu og þrjár raddir og Beatur. Í Fríkirkjunni heldur hljómsveitin Árstíðir hátíðartónleika. Hljómsveitin mun flytja lög af breiðskífunni sem hún gaf út á árinu í nýjum útsetningum auk vel valinna jólalaga í félagi við góða vini.Diskó og MillaballÍ ár kemur annar í jólum upp á laugardegi og því verður skellt í djammgírinn um leið og síðasti malt og appelsínsopinn verður kominn niður. Diskókóngurinn Páll Óskar hyggst breyta vígi sínu Nasa í hið sögufræga Studio 54 í New York. Hann lofar risastórri sviðsmynd, brjáluðum skreytingum og flottasta ljósasjóvi sem sést hefur í húsinu. Sérstakir heiðursgestir verða diskódúettinn Þú og ég. Ballið stendur frá kl. 23.59 til 05.30 á sunnudagsmorguninn, en forsala miða er á Nasa frá kl. 13 til 17 á annan í jólum. Lítið hefur farið fyrir Milljónamæringunum upp á síðkastið, en á annan í jólum snýr hljómsveitin aftur og verður með ball á Hótel Sögu. Píanóleikarinn Kjartan Valdimarsson hefur tekið við stöðu Karls Olgeirssonar, sem er flúinn til Svíþjóðar. Til söngs verða að þessu sinni hafðir „upprunalegi þverhausinn“, Bogomil Font, Ragnar „hinn fullþroska“ Bjarnason og látúnsbarkinn Bjarni Arason. Bandið tekur til við taktinn upp úr miðnætti og verða miðar á ballið seldir fyrr um daginn á Hótel Sögu. Rokk og rafÞá er það rokkið og hippið og kúlið. Weirdcore kvöld verður haldið á Jacobsen á Þorláksmessu. Verið er að fagna annarri Weirdcore-safnplötunni sem hægt verður að sækja frítt á netið. Þrjú raftónlistarbönd koma fram: Futuregrapher, Quadruplos og Biogen. Á annan í jólum heldur rafstuðsveitin Sykur útgáfutónleika á Batteríinu fyrir frumraun sína Frábært eða frábært sem kom út í haust. Berndsen sér um upphitun. Sama kvöld verður hljómplötuútgáfan Kölski með jólahátíð á Sódómu. Fram koma Dikta, Ourlives, Agent Fresco og Vicky. Þá verður gamalt Party zone stuð frá 1990 til 1995 rifjað upp með trítilóðum plötusnúðum á annan í jólum á Jacobsen. Síðasti sjens – Litlu áramótin verða haldin á Nasa 30. desember og fram undir morgun á gamlársdag. Tvær af öflugustu sveitum Klakans í dag, FM Belfast og Retro Stefson, ætla þar að trylla mannskapinn með æsandi músík. Svo tekur bara gamlárskvöld við með öllum sínum djammæsingi. Alveg nóg að gera fyrir djammara, sem sé.drgunni@frettabladid.is
Mest lesið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Menning Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Fleiri fréttir „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð Sjá meira