Hundur töframannsins of ljúfur fyrir illmennið Sykes 22. desember 2009 04:30 baldur og mjöll Baldur Brjánsson með tíkina Mjöll sem var einfaldlega alltof góð fyrir hlutverkið í Oliver! Bill Sykes, sem leikinn er af Þóri Sæmundssyni, verður því hundalaus í sýningunni. „
Hún kom á eitt rennsli en bara kolféll á krúttheitum,“ segir Þórir Sæmundsson sem leikur illmennið Bill Sykes í söngleiknum Oliver! sem verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu á annan í jólum. Bolabíturinn Mjöll, sem er í eigu töframannsins fyrrverandi Baldurs Brjánssonar, mun ekki leika hund Sykes í söngleiknum þrátt fyrir að samningar þess efnis höfðu náðst. Mjöll, sem er tík, þótti einfaldlega alltof góð við hliðina á Sykes og því fór sem fór. Af þessum sökum verður enginn hundur með Sykes í söngleiknum þrátt fyrir að handritið kveði á um annað. „Hún var bara ekki nógu skelfileg fyrir vonda karlinn. Hann þyrfti helst að eiga meiri varðhundatýpu en þessi tík var samt agalega sæt, feit og krumpuð,“ segir Þórir og bætir við: „Þetta er einhver bolabítsblanda í bókinni, þannig að hann er með bolabítshaus og andlit en er samt svolítið „fitt“ og snöggur. Þessi kjagaði bara yfir sviðið og var rosalega móð og más. Þetta varð einhvern veginn bara of fyndið,“ segir hann og hlær. „Svona feit og klunnaleg en samt agalega sætur hundur. Það hefði verið gaman að hafa hann en því miður. Hún fær kannski að vera í einhverju öðru þar sem eigandinn er ekki svona vondur.“ Þórir hafði beðið spenntur eftir því að leika á móti Mjöll, enda hefur hann alltaf haft mjög gaman af hundum. „Ég var farinn að hlakka til. Ég ætlaði að sjá um hundinn í leikhúsinu og gefa honum að éta. En hún féll bara á þessu greyið. Spenarnir á henni sáust líka svolítið vel og það er algjörlega ekki málið því þessi hundur á að vera feitur boli. Hún var eiginlega svona nett dagdrottning.“ Baldur Brjánsson fylgdist með rennslinu þegar Mjöll átti að leika á móti Þóri og sá undir eins að hlutirnir voru ekki að ganga upp. „Bill Sykes er náttúrulega groddamenni og hún virkaði bara svo sæt og ljúf við hliðina á honum,“ segir Baldur. „Ég sá alveg um leið að þetta passaði ekki. Mér fannst hún vera eins og poodle-hundur hjá honum.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Menning Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Fleiri fréttir „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð Sjá meira