Annað tap Chelsea í þremur deildarleikjum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. október 2009 13:47 Richard Dunne og félgar fagna fyrra marki Villa í dag. Nordic Photos / Getty Images
Chelsea á það nú á hættu að missa toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir að liðið tapaði, 2-1, fyrir Aston Villa á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þetta er annað tap Chelsea í síðustu þremur deildarleikjum liðsins. Liðið tapaði einnig fyrir Wigan á útivelli í lok síðasta mánaðar. Chelsea vann svo Liverpool, 2-0, á heimavelli í millitíðinni og kom sér þá á topp deildarinnar. Manchester United getur því með sigri á Bolton komið sér aftur á toppinn. Didier Drogba kom Chelsea yfir með skoti á 15. mínútu leiksins. Brad Freidel, markvörður Villa, hefði hins vegar átt að verja skotið. En leikmenn Aston Villa skoruðu tvívegis með skalla eftir hornspyrnur og tryggðu sér þar með sigurinn. Fyrst var Richard Dunne að verki á 32. mínútu. Sigurmarkið skoraði svo James Collins á 52. mínútu. Með sigrinum kom Aston Villa sér upp í fimmta sæti deildarinnar og hoppaði þar með upp fyrir bæði Arsenal og Liverpool, um stundarsakir að minnsta kosti. Emile Heskey var enn á varamannabekknum í liði Aston Villa og var byrjunarliðið óbreytt frá því að Villa gerði markalaust jafntefli við Manchester City fyrir tveimur vikum. Petr Cech, Florent Malouda og Jose Bosingwa komu inn í byrjunarlið Chelsea og Joe Cole lék sinn fyrsta deildarleik síðan í janúar er hann kom inn á sem varamaður undir lok leiksins. En allt kom fyrir ekki.
Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Enski boltinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Fótbolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Fleiri fréttir Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Sjá meira