Grunnur að endurreisn liggur í samstarfi við AGS 4. febrúar 2009 20:36
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi, að mikilvægt væri að samhent ríkisstjórn starfi á þeim erfiðu tímum sem nú séu uppi. Hún óskaði því nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í störfum sínum. Hún vonaði að ríkisstjórnin myndi halda vel á spöðunum þjóðinni til heilla. „Sjálfstæðisflokkurinn ætlar í fyrsta sinn í langan tíma að bjóða upp á sterka og sameinaða stjórnarandstöðu," sagði Þorgerður. Hún benti á að Sjálfstæðisflokkurinn myndi leggja fram tvö þingmál, um greiðsluaðlögun og greiðslu úr viðbótarlífeyrissparnaði, sem höfðu verið tilbúin áður en fyrri stjórn var slitið. Þorgerður sagði að grunnur að endurreisn efnahagslífsins lægi í samstarfinu við AGS, sem fæli í sér að vinna að endurreisn gjaldmiðilsins, að koma bankakerfinu á flot og aðhaldi í ríkisfjármálum. Fróðlegt væri að sjá hvernig ríkisstjórninni tækist upp við aðhald í ríkisfjármálum. Sjálfstæðisflokkurinn væri á móti því að velta álögum þjóðarbúsins yfir á heimilin með skattahækkunum Þorgerður sagði að þrír mánuðir væru til kosninga. Það væri um það bil jafn langur tími og fyrri ríkisstjórn hafði frá hruni bankanna til stjórnarslita. Hin nýja ríkisstjórn geti því ekki komið sér undan verkum og borið við tímaskorti.
Mest lesið Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar Innlent Fleiri fréttir „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Sjá meira