Óttast skert öryggi á vellinum 21. nóvember 2009 01:45 Jón Viðar Matthíasson Slökkviliðsstjóri hefur beðið Brunamálastofnun um að krefja Flugstoðir skýringa á því hvernig brunaöryggi verði háttað á Reykjavíkurflugvelli í framtíðinni. Fréttablaðið/valli
Slökkviliðsstjóri hefur áhyggjur af því að á Reykjavíkurflugvöll verði ekki ráðnir menn með lögboðna menntun til að sinna brunavörnum. Fjórir til fimm menn hafa verið á flugvellinum á vegum slökkviliðsins síðustu ár. Flugstoðir ohf. hafa hins vegar sagt upp samningnum við slökkviliðið og munu ætla að búa til sinn eigin viðbragðshóp í staðinn. „Við höfum ekki fengið á hreint hvernig þeir ætla að útfæra þetta,“ segir Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri. Fyrir utan margþætta menntunina þurfi einnig að senda menn í reglulegar læknisskoðanir, þrekpróf og þess háttar. „Það er ansi dýrt að reka slökkvilið,“ segir Jón Viðar. Það gæti orðið jafn dýrt fyrir Flugstoðir og það er fyrir slökkviliðið að halda úti fullnægjandi viðbúnaði. „Við höfum því skrifað bréf til Brunamálastofnunar, sem er eftirlitsaðili með slökkviliðum. Við óskum eftir því að hún kalli eftir skýringum frá Flugstoðum um hvernig þetta verður útfært,“ segir hann. Jón Viðar segir að „ákveðinn uggur“ sé í honum þegar verið sé að riðla núverandi góðu fyrirkomulagi. Vel geti verið að Flugstoðir lumi á einhverri lausn: „En ég er frekar smeykur um að hún sé ekki í kortunum.“ - kóþ
Mest lesið Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Erlent Lá alblóðugur á gangstétt eftir að hafa komist undan árás æskuvinarins Innlent Þungt hugsi og í áfalli Innlent Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum Innlent Samþykktu Trump-samninginn einróma Erlent Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök Erlent Vantraust á framkvæmdastjóra Félagsbústaða talið alvarlegt Innlent Hvað vitum við um Leó páfa? Erlent „Rotnir starfshættir og ríkisrekið ofbeldi gegn borgurunum“ Innlent „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Erlent Fleiri fréttir „Svik við lögreglumannastéttina“ og slái hann „mjög illa“ Átta ára fangelsi í sögulegu fíkniefnamáli Einn rólegur, annar afar ósáttur Skólaþorpið í Laugardal: Syðri innkeyrslunni lokað og 256 bílastæði fjarlægð „Gott að eldast“ í tuttugu og tveimur sveitarfélögum Uppsagnir á Þjóðminjasafninu Lítil Björg dró stóra Hildi í land Nýr páfi, svik við almenning og loðnasti starfsmaður Rimaskóla Lá alblóðugur á gangstétt eftir að hafa komist undan árás æskuvinarins Þungt hugsi og í áfalli Telja Jón Þór hafa tryllst af afbrýðissemi Viðsnúningur eftir krappan dans Vantraust á framkvæmdastjóra Félagsbústaða talið alvarlegt Rúmir níu milljarðar runnið úr ríkissjóði til flokkanna Ólafur Þór undrandi og dómsmálaráðherra talar um svik við þjóðina Heilsa, vellíðan, friður, réttlæti og jöfnuður mikilvægustu markmiðin Svik við almenning, kerfið og samstarfsfólk Ein breyting á stjórn sem leggja á niður „Rotnir starfshættir og ríkisrekið ofbeldi gegn borgurunum“ Miklum meirihluta finnst auglýsingar SFS slæmar Hafdís hafi bara umlað „hann reyndi að drepa mig“ Annar snarpur skjálfti í Ljósufjallakerfi Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum „Þetta er mál sem varðar ekki einungis kaþólsku kirkjuna“ „Íslenskir bankar eru með belti, axlabönd, sikrisnælur og hjálma“ „Þetta er svona eitraður kokteill” Til skoðunar hvort hægt sé að innheimta leigu beint af tekjum Hefur áhyggjur af því að Amgen „gleypi Íslenska erfðagreiningu og spýti því út“ Efla eftirlit með áfengissölu á íþróttaleikjum Páfaspenna, drykkjulæti og umdeildur útburður Sjá meira