Ætla að hertaka hægri hlið Laugavegar Sara McMahon skrifar 8. september 2009 06:00 Færa út kvíarnar Valdimar Geir og Hermann Fannar hafa nú tekið yfir rekstur kaffihússins Tíu dropar. Fyrir reka þeir Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda. Vísir/Anton BRink
Hermann Fannar Valgarðsson og Valdimar Geir Halldórsson reka saman kaffihúsið Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda auk farfuglaheimilisins Reykjavík Backpackers. Nú hafa þeir félagar einnig tekið við rekstri kaffihússins Tíu dropa við Laugaveg. „Þetta var nú alveg óplanað. Við sáum kaffihúsið auglýst til sölu fyrir nokkrum mánuðum og okkur leist svo vel á það að við ákváðum að láta slag standa. Þetta fellur líka vel inn í áform okkar um að taka yfir alla hægri hlið Laugavegarins, allt frá Hlemmi og niður að Bankastræti,“ segir Hermann Fannar, betur þekktur sem Hemmi. Aðspurður segir Hemmi að ekki standi til að breyta kaffihúsinu heldur verður það áfram starfrækt í núverandi mynd og með sama starfsfólki. „Þar sem kaupin komu svolítið flatt upp á okkur þá höfum við ekki ákveðið hvaða stefnu við tökum í þessu, en pælingin er að hrófla við sem minnstu en bæta við matseðilinn og lengja afgreiðslutímann eitthvað. Staðsetningin er einnig góð því kaffihúsið er beint á móti farfuglaheimilinu og því munum við geta beint gestum okkar þangað í morgunverð.“ Auk þess að hafa tekið við rekstri Tíu dropa hyggjast drengirnir koma upp móttöku og afþreyingarherbergi á neðstu hæð hússins sem hýsir farfuglaheimiliið. „Við ætlum að stækka aðeins við hostelið og koma upp verslun, móttöku, einhvers konar setustofu og litlum hótelbar. Framkvæmdum ætti að vera lokið um áramótin ef allt gengur samkvæmt áætlun,“ segir Hemmi að lokum.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Sjá meira