Stóru háskólarnir ræða um samstarf 12. september 2009 04:00 HR.
Rektorar Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík hafa átt samtöl um sameiningu eða víðtækt samstarf háskólanna. Þetta staðfestir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, í samtali við Fréttablaðið. Ekki er þó um formlegar viðræður að ræða. Háskólarnir í landinu eru sjö talsins og víðtækt samstarf þeirra á milli hefur verið rætt. „Ég er þeirrar skoðunar að við þær kringumstæður sem nú ríkja í fjármálum ríkisins verði ekki hjá því komist að skoða í fullri alvöru alla kosti sem geta leitt til hagræðingar og um leið styrkingar háskólastarfsemi í landinu, og láta ekki staðar numið við það sem yrði einfaldast í framkvæmd heldur leita að því sem getur skilað mestum ávinningi," segir Kristín. „Ef við skoðum hvaða sameining myndi skila langmestum fjárhagslegum ávinningi er það sameining Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Á því leikur enginn vafi. Ég vil ekki nefna neinar tölur í þessu samhengi en þarna yrði um umtalsverðar fjárhæðir að ræða. Slík sameining yrði hins vegar töluvert flókin og viðkvæm og vanda þyrfti afskaplega vel til verka. Úr slíkri sameiningu kæmi hins vegar mjög öflugur skóli, sem myndi mæla sig og keppa við erlenda háskóla." Um samstarf við aðra háskóla segir Kristín að einföld hugmynd væri að taka upp sameiginlega innritun, sem myndi skila fjárhagslegum ávinningi en ekki valda þáttaskilum. „Ein sameining sem nefnd hefur verið er möguleg sameining Háskóla Íslands og Landbúnaðarháskólans," segir Kristín. Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri, segir að sameining við skólana í Reykjavík sé ekki inni í myndinni af hans hálfu. „Yrði farið út í sameiningu þýddi það í raun að háskólinn hér yrði lagður niður," segir Stefán. - shá
Mest lesið Íslensk stúlka í útskriftarveislu sem breyttist í martröð Innlent Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Innlent Margrét Hauksdóttir er látin Innlent Tíu milljónum fátækari eftir augnablik af einbeitingarleysi Innlent Nauðlending á þjóðveginum Innlent Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum Innlent Líkir aðalfundi Sósíalista við Warhammer-útsöluna í Nexus Innlent Eldur kviknaði í hjólhýsi við íbúðarhús Innlent Náðar spilltan fógeta Erlent Segir Guðmund Hrafn ekki sjá bjálkann í eigin auga Innlent Fleiri fréttir Kaup á kínverskum kísil „með ólíkindum“ og sérsveitaræfing Erfiðast að læra íslenskuna Afnema lengri opnunartíma í ákveðnum leikskólum borgarinnar Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Utanríkisráðherra Bretlands á leið til Íslands Eldur kviknaði í hjólhýsi við íbúðarhús Fjórða hvert ungmenni talar sjaldnar en einu sinni í viku við foreldra sína Ungliðahreyfing Viðreisnar ályktar gegn ákvörðun ríkisstjórnarinnar Lýstu yfir óvissustigi vegna sömu flugvélar Hefur lagt tillögur á borðið en tjáir sig ekki um lögreglustjóra Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum Áhyggjuefni hversu fáir treysta íslenskum fjölmiðlum Uppsagnir yfirvofandi á Húsavík Hnífi beitt í heimahúsi á Húsavík Frábiður sér að nördum sé líkt við Sósíalista Íslensk stúlka í útskriftarveislu sem breyttist í martröð Fyrrverandi þingmenn í nýrri stjórn Evrópuhreyfingarinnar Segir Guðmund Hrafn ekki sjá bjálkann í eigin auga Mannréttindadómstóllinn sýknar ríkið af kröfum mótmælenda Flestir urðu varir við „falsfréttir“ fyrir síðustu alþingiskosningar Margrét Hauksdóttir er látin Líkir aðalfundi Sósíalista við Warhammer-útsöluna í Nexus Þorbjörg sögð bjóða Helga embætti vararíkislögreglustjóra Nauðlending á þjóðveginum Tíu milljónum fátækari eftir augnablik af einbeitingarleysi Lækkandi fæðingartíðni ekki hundaflauta: „Ég bara hafna algjörlega forsendunum“ Hætt í VG og segir spillingu grassera í íslenskum stjórnmálum Ný forysta stefni í ranga átt „Einhver erfiðasti tími sem ég hef gengið í gegnum“ „Og ég treysti því að dómstólar snúi því við“ Sjá meira